Glóbaliztarnir vilja rota lýðræðið með þriðju heimsstyrjöldinni

Alls staðar skiptist nú hinn vestræni heimur í afstöðunni með eða gegn ætlun Bidens og Zelenský um að hefja árásir á Rússland sem fyrir fram er vitað að Rússar líta á sem stríðsyfirlýsingu Nató og Bandaríkjanna gegn sér. Zelenský mun fljótlega hefja árásirnar undir handleiðslu Bandaríkjamanna og segir digurbarkalega að „eldflaugarnar munu tala sínu máli — þær munu svo sannarlega gera það” (sjá myndskeið að neðan).

Yfirlýsing Bidens um að „gefa Úkraínu leyfi til að nota langdrægar eldflaugar Bandaríkjanna til árása á Rússland” er ekkert annað en tilraun til að rota lýðræði Bandaríkjanna og alls hins vestræna heims. Þegar Trump hefur verið endurkjörinn forseti með yfirgnæfandi meirihluta, þá reyna glóbaliztarnir að koma í veg fyrir lýðræðislegt kjör forsetans og vilja bandarísku þjóðarinnar með því að hefja árásir á eitt stærsta kjarnorkuveldi heims: Rússland.

Viðvörun Donald Trump yngri

Donald Trump yngri varar heiminn við afleiðingunum og segir:

„Herbáknið „The Military Industrial Complex“ virðist vilja tryggja að þeir komi þriðju heimsstyrjöldinni í gang áður en faðir minn fái tækifæri til að skapa frið og bjarga mannslífum. Verðum að ná í þessar trilljónir dollara. Skítt með allt annað!!! Fávitar!“

Stofnandi Valkosts fyrir Þýskaland sendir skilaboð frá föðurlandsvinum Þýskalands til Donald Trump forseta

Sven von Storch er formaður stærstu samtaka föðurlandsvina sem styðja Trump í Þýskalandi, Borgarabandalagsins, með u.þ.b. 200.000 meðlimi. Sven von Storch vann að stofnun Valkosts fyrir Þýskalands, AfD. Hann og eiginkona hans, Beatrix von Storch, varaformaður AfD, vinna náið með Steve Bannon, Nigel Farage og Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta Brasilíu. Sven von Storch hefur lengi hvatt til friðsamlegrar lausnar á hinni tilgangslausu Úkraínudeilu og hann sendi eftirfarandi skilaboð til Donald Trumps, lýðræðislega kjörins forseta Bandaríkjanna í dag, 18. nóvember:

„Kæri Trump forseti,

Djúpríkið og glóbaliztarnir vilja koma í veg fyrir að þú myndir nýja ríkisstjórn með því að kasta heiminum út í mikið stríð. Fyrsta skrefið í þá átt er ákvörðun Biden-stjórnarinnar að leyfa Úkraínu að nota bandarískar langdrægar eldflaugar til að ráðast beint á Rússland.

Með þessu vilja glóbaliztarnir knýja fram fullt stríð á milli Nató og Rússlands. Stríð sem ætlað er í fyrsta lagi til að koma í veg valdatöku þína í Washington. Stríð sem ætlað er að eyðileggja skipulag og frelsi þjóða okkar og siðmenningu.

Með þessu vilja þeir þröngva upp á okkur nýrri alræðishyggju, heimsskipun glóbalizmans. En þú þekkir þetta betur en nokkur annar. Þú ert eini maðurinn ásamt bandamönnum þínum sem getur komið í veg fyrir þetta stríð og þessar hörmungar núna.

Við, fólk með góðan vilja í Þýskalandi, Evrópu og öllum heiminum, stöndum við hlið þína núna reiðubúin til að styðja þetta friðarverkefni. Vinsamlega gríptu til viðbragða núna, stríðinu verður að ljúka. Tíminn er að renna út. Guð blessi þig, fjölskyldur okkar og allar frjálsar og fullvalda þjóðir þessa heims. Þakka þér fyrir.“

Fara efst á síðu