Glatað að senda fé til Úkraínu

Sérfræðingar Vesturlanda hafa gjörsamlega vanmetið Rússland og óteljandi milljarðar sem Svíþjóð og önnur Vesturlönd senda til Úkraínu hafa verið „gjörsamlega glataðir peningar“ segir Lars Bern á Swebbtv.

Mikael Willgert og Lars Bern ræða í Swebbtv (sjá að neðan) meðal annars um stríðið í Úkraínu og allt það fé sem Vesturlönd hafa sent til Úkraínu. Svíþjóð hefur sent 93 milljarða sænskra króna til Úkraínu. Lars Bern segir það algjört brjálæði að senda milljarð eftir milljarð í það svarthol sem Úkraína er. Að sögn Berns hefur Úkraína þegar tapað stríðinu:

„Þetta er allt glatað fé. Margir leiðandi herforingjar hafa frá fyrsta degi algjörlega vanmetið stöðuna. Vesturlönd hafa vanmetið Rússland, sérstaklega á hernaðarsviðinu.“

Rússland kann að hafa verið tiltölulega veikburða hernaðarlega, þegar þeir fóru inn í Úkraínu í febrúar 2022. En „í dag er rússneski herinn eitthvað allt annað en hann var þá“ segir Bern. Samtímis tala stjórnmálamenn í Evrópu um endurvopnavæðingu. Þeir tala um peninga en hafa ekki bolmagn til að gera neitt í málunum. Nú tekur rússneski herinn stöðugt ný svæði í Úkraínu. Og Rússland er enn í stríði til að þreyta út Úkraínu. Meginmarkmiðið er ekki hertaka landsvæði, heldur að útrýma úkraínska hernum.

Fara efst á síðu