Getið þið gyðingahatararnir hrakið þessar 20 staðreyndir?

Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor emeritus skrifar á Facebook:

Það er sennilega ekki dropi af gyðingablóði í æðum mér, og ég á engra hagsmuna að gæta um Ísrael eða Arabaríkin. En ég hef tekið til máls, því að mér hafa blöskrað rökleysurnar um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Hér skal ég nefna 20 óvefengjanlegar staðreyndir.

1. Gyðingar hafa búið í Ísrael í nær fjögur þúsund ár.

2. Rómverjar hröktu marga á braut, en eftir var alltaf talsverður hópur.

3. Arabar lögðu undir sig Ísrael árið 637, en auðvitað hefur verið þar slangur af þeim áður.

4. Gyðingahatur blossaði aftur upp í Evrópu á 19. öld, ekki síst vegna velgengni gyðinga í samkeppni um störf og fjármuni við aukið frelsi.

5. Síonisminn, óskin um að snúa aftur í hið forna heimaland, Ísrael, varð til upp úr því, seint á 19. öld, og upp úr 1880 fóru gyðingar að snúa þangað aftur, ekki síst vegna gyðingaofsókna í Rússaveldi og síðan Dreyfusarmálsins í Frakklandi.

6. Gyðingar keyptu jarðir í hinu forna Ísrael, sem Rómverjar höfðu nefnt Palestínu, en hét ýmsum nöfnum í Tyrkjaveldi, og urðu smám saman stór minni hluti í landinu.

7. Arabar tóku gyðingum misjafnlega, sumir vel og aðrir illa, og urðu iðulega átök, þegar Arabar réðust á gyðingabyggðir.

8. Eftir stríð lögðu Sameinuðu þjóðirnar til, að landinu yrði skipt milli Araba og gyðinga. Gyðingar samþykktu tillöguna, en Arabaríkin höfnuðu henni og réðust 1948 á hið nýstofnaða gyðingaríki, Ísrael.

9. Ísrael sigraði í stríðinu. 700.000 Arabar flýðu þá frá Ísrael til Arabaríkja. 800.000 gyðingar flýðu frá Arabaríkjum til Ísraels.

10. Á 20. öld hafa miklu meiri brottflutningar orðið annars staðar, án þess að það lifi nema í sögubókum: ein milljón Grikkja frá Tyrklandi til Grikklands, ein milljón frönskumælandi manna frá Alsír til Frakklands, tólf milljónir þýskumælandi manna til Þýskalands frá Póllandi, Tékklandi og víðar og svo framvegis.

11. Gyðingarnir, sem flýðu til Ísrael, samlöguðust íbúum. Arabar, sem flýðu til Arabaríkjanna, voru flestir geymdir í flóttamannabúðum áratugum saman, raunar alla tíð.

12. Arabaríkin hafa nokkrum sinnum ráðist á Ísrael, en jafnan beðið ósigur.

13. Jórdanía hernam vesturbakkann frá 1948 og Egyptaland Gasa, án þess að nokkur segði neitt. Ísrael hernam þessi svæði síðan eftir að hafa sigrað í sex daga stríðinu 1967.

14. Hamas hefur á stefnuskrá sinni að útrýma Ísrael.

15. Ísrael hvarf frá Gasa árið 2005 og neyddi gyðinga, sem þar bjuggu, til að fara til Ísrael. Hamas tók við stjórn.

16. Hamas hefur notað það fé, sem borist hefur, til að undirbúa árás á Ísrael, ekki til að treysta innviði og auka verðmætasköpun.

17. Árás Hamas á Ísrael 7. október 2023 var svo villimannsleg, að helst verður jafnað við árás Mongóla á Evrópu á þrettándu öld.

18. Nasistar frömdu þjóðarmorð, þegar þeir reyndu að útrýma gyðingum. Þeim tókst það í Póllandi: eftir stríð voru aðeins eftir um 3% þess fjölda, sem búið hafði þar fyrir stríð. Palestínu-Aröbum hefur hins vegar fjölgað úr einni í fimm milljón á tímanum frá stofnun Ísraelsríkis.

19. Vestrænar fréttastofur gleypa áróður Hamas hráan, en komið hefur í ljós, að sumir svokallaðir fréttamenn og líka starfsmenn Flóttamannahjálpar SÞ eru Hamas liðar.

20. Gyðingar hafa hvarvetna skarað fram úr, eftir að þeir fengu jöfn tækifæri og aðrir (eflaust frekar vegna rótgróinnar arfleifðar en einhverra erfða). Meira en 200 Nóbelsverðlaunahafar eru gyðingar, en aðeins 6 Arabar (í vísindum).

Getið þið gyðingahatararnir hrakið þessar 20 staðreyndir?

Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor emeritus