Geta landsmenn þolað nútíma stjórnmálamenn sem fara á tripp á kostnað skattgreiðenda?

Óðinn skrifar grein um innanhúsmál Viðreisnar sem hefur lengi boðist til að taka til í íslenskum stjórnmálum. Núna er freistandi að leggja til að flokkurinn byrji á að gera hreint fyrir eigin dyrum. Ekki síst hvað varðar bókhaldið. Eins og Viðskiptablaðið bendir á, þá er það nokkuð sérstök staða fyrir flokk sem vill láta treysta sér fyrir umbótum á þjóðarbúinu að þurfa að útskýra hvernig milljónir úr eigin sjóðum rötuðu inn á persónulega reikninga fyrrverandi formanns flokksfélagsins í Reykjavík.

Samkvæmt upplýsingum framkvæmdastjóra Viðreisnar til Vísis viðurkenndi Natan Kolbeinsson að hafa dregið sér fjórar til fimm milljónir króna. Málið var kært til lögreglu og honum vikið úr trúnaðarstörfum. Meirihluti fjárins var sagður endurgreiddur. Það er auðvitað betra að fá peningana aftur, en endurgreiðsla kemur aldrei í staðinn fyrir venjulega endurskoðun og fjármálaeftirlit.

Það sem gerir málið svo sérstaklega óþægilegt fyrir flokkinn er að Natan hafði áður hlotið dóm fyrir fjárdrátt. Árið 2017 var hann dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi vegna fjárdráttar hjá Landssambandi æskulýðsfélaga. Fyrri dómurinn kallar á skýringar á því hvernig ábyrgð og eftirliti með fjármunum var háttað hjá Viðreisn. Hvers vegna er dæmdum fjársvikara veitt staða með fjármálum flokksins? Þótt að fólk eigi að geta unnið sér traust á ný, þá er til millivegur á milli ævilangrar útskúfunar og fjármálaeftirlits byggt á óskum um bata.

Svo er það Guðbrandur Einarsson, sem sagði af sér þingmennsku eftir að hafa viðurkennt að hafa haft samband við konu með vændiskaup í huga árið 2012. Hann sagðist hafa hætt við þegar á staðinn kom. Ekki er það nú haldgott dæmi um dómgreind og traust þeirra sem lýsa yfir hástemmdum siðferðiskröfum á vettvangi stjórnmálanna en fleygja þeim svo í ruslafötuna á leiðinni úr ræðupúlti Alþingis.

Innanflokksátökin bætast svo við myndina. Jón Gnarr hefur lýst forystuskorti og klíkumyndun og yfirgefið þingflokkinn, þótt hann sé áfram í Viðreisn. Það hlýtur að teljast athyglisverð umsögn um samstarfið þegar þingmaður kýs að styðja ríkisstjórnina úr öruggri fjarlægð frá eigin þingflokki.

Umræða um fíknivanda einstakra flokksmanna krefst nákvæmni. Sigmar Guðmundsson hefur sjálfur rætt áfengisvanda sinn og meðferð. Natan hefur einnig greint frá fíknivanda. Að leita sér hjálpar er ábyrgðarverk. Fjárdráttarmál, eftirlit og pólitísk ábyrgð hverfa þó ekki við dyr meðferðarstofnunar. Flokksforystan þarf enn að svara fyrir það sem fellur undir hennar verksvið.

Samtímis þurfa heimilin að berjast til að láta endana ná saman í peningamálum. Ríkisstjórnin hækkaði bifreiðagjald um 3,7 prósent um síðustu áramót og breytti vörugjöldum á ökutæki þannig að lágmark þeirra fór úr 5 í 10 prósent og hámark úr 65 í 70 prósent. Samhliða voru vörugjöld á rafbíla felld niður og eldsneytisgjöld felld brott við upptöku almenns kílómetragjalds. Áhrifin eru mismunandi, en greiðsluseðlarnir kalla á pólitísk svör.

Hver veit hvernig og hvort þessi persónulegi fíklavandi Viðreisnar tengist skattaákvörðunum ríkisstjórnarinnar. Pólitíska spurningin bítur: Hversu sannfærandi er flokkur sem krefst aukinna framlaga frá almenningi og á við fíkniefnavanda að stríða samtímis sem hann getur ekki svarað grundvallarspurningum um meðferð eigin fjár?

Kannski ætti allur þingflokkur Viðreisnar að fara í meðferð. Ef ekki gegn fíkiniefnavanda, þá alla vega gegn bókhaldsfælni. Líklegast þarf flokkurinn að reisa við báða málaflokkana. Á meðan verður þjóðinni alla vega hlíft við nútíma stjórnmálamönnum sem fara á tripp á kostnað skattgreiðenda.