„Gengið af göflunum“ – um stigmögnun Þýskalands í stríðinu

Screenshot

Þýska ríkisstjórnin hefur gert Þýskaland að stríðsaðila á grundvelli rangrar greiningar á Rússlandi og Úkraínustríðinu, að mati Rogers Koeppel í Deep Dive.

Í viðtali við Daniel Davis heldur Roger Koeppel, aðalritstjóri Die Weltwoche, því fram að Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, nýti Úkraínustríðið til að reyna að halda pólitískum völdum sínum. Hann noti stríðið til að þjappa þjóðinni að baki sér. Að sögn Koeppels segist Merz vera síðasta varnarlína siðmenningar okkar. Afstaða Merz sé sú að verði Úkraínu ekki hjálpað að magna upp stríðið muni Rússland ráðast beint á Þýskaland.

En í raun sé þessu einmitt öfugt farið.

„Þetta er alrangt. Ég meina, ef Rússland kynni að ráðast beint á Þýskaland væri það einmitt vegna þess að Þjóðverjar styðja Úkraínu meira en nokkur annar,“ segir Roger Koeppel. „Þeir [þýskir ráðamenn] eru stríðsaðilar. En ríkisstjórnin er ekki einu sinni nógu heiðarleg til að segja að við séum í stríði við Rússland, því þá myndi hver einasti Þjóðverji átta sig á að þeir væru gengnir af göflunum, að þeir hefðu misst vitið. Hafa þeir ekkert lært?“

Að mati Koeppels er eins og ráðamenn hafi sofið í gegnum sögutímana. Þannig dragi menn engan lærdóm af sögunni, en hann telur slíkan lærdóm sérstaklega mikilvægan fyrir Þýskaland.