Félagið Frelsi og fullveldi skrifaði eftirfarandi á Facebook, þar sem samtal þeirra séra Halldórs Gunnarssonar og séra Geirs Waage um EES-samninginn er birt (sjá YouTube að neðan):
Geir Waage vill segja EES-samningnum upp — og telur komið að skuldadögum í Evrópu
Hvað gerum við gagnvart EES-samningnum?
Sr. Halldór Gunnarsson í Holti spyr og sr. Geir Waage svarar afdráttarlaust. Endurskoðun merkir í hans huga að segja samningnum upp. Hann sé farinn að hallast að því að samningurinn stangist á við stjórnarskrá Íslands og vill einnig láta skoða regluverkið sem hefur verið innleitt á grundvelli hans.
Geir telur tímabært að endurmeta afstöðu Íslands frá grunni og segir okkur ekki eiga að vera feimin við að hverfa úr Schengen-samstarfinu. Hann vísar til áframhaldandi EFTA-aðildar og spyr hvort kostnaðurinn við EES sé farinn að vega upp ávinninginn.
En gagnrýni hans nær lengra.
Geir telur framtíð NATO og Evrópusambandsins samtvinnaða. Hann lýsir Evrópu sem heimsálfu ólíkra þjóða, hefða og hagsmuna sem verði ekki steypt saman í eina heild á fáeinum árum. Að hans mati er innri ágreiningur þegar farinn að grafa undan Evrópusambandinu.
Um Úkraínustríðið er hann enn harðorðari. Geir telur komið að skuldadögum og stríðið tapað af hálfu Úkraínu og stuðningsríkja hennar. Hann segir áframhaldandi stríðsrekstur gleypa gríðarlega fjármuni á meðan félagsleg þjónusta og velferð almennings í Evrópu gjaldi fyrir það.
Hann spáir því að Rússar muni ráða úrslitum um niðurstöðuna og telur Vesturlönd hafa glatað tækifærum sínum til að hafa áhrif á hana. Þetta er dökk framtíðarspá Geirs og hörð gagnrýni á þá stefnu sem hann telur hafa leitt Evrópu í ógöngur.
Á Ísland að halda óbreyttri stefnu — eða er tímabært að endurmeta EES-samstarfið frá grunni?
Horfðu á Eftir þjóðaratkvæði #7 með sr. Geir Waage og sr. Halldóri Gunnarssyni í Holti og taktu þátt í umræðunni.
