Geert Wilders fellir hollensku ríkisstjórnina: Stjórnlaus fólksinnflutningur

Press conference ' Scenarios of a new cooperation between European nations '

Hollenska ríkisstjórnin er fallin eftir að Geert Wilders og flokkur hans PVV, hættu stjórnarsamstarfinu. Ástæðan er sú að ríkisstjórnin neitaði að samþykkja kröfur flokksins um verulega minni fólksinnflutninga.

Wilders skrifaði á X þriðjudagsmorgun (sjá X að neðan):

„Engin undirskrift á áætlun okkar um hælisleitendur. Engar breytingar á aðalsamkomulaginu. PVV yfirgefur stjórnarsamstarfið.“

Brottförin þýðir að ríkisstjórn Dick Schoof forsætisráðherra, sem hefur verið við völd í minna en ár, skortir nú meirihluta á þingi. Talið er að þetta muni leiða til nýrra kosninga og áframhaldandi pólitískrar óvissu í landinu, að því er Euractiv greinir frá.

Fólk er hrætt við að verða að minnihluta í eigin landi

Wilders setti fram úrslitakosti og krafðist þess að flokkarnir sem standa að ríkisstjórninni samþykkti tíu punkta áætlun gegn fjöldainnflutningi fólks til Hollands. Wilders sagði á blaðamannafundi í síðustu viku:

„Núna tökum við af okkur hanskana, við hættum að gera málamiðlanir. Við höfum of mikla fólksinnflutninga, of mikið íslam og of litla virðingu fyrir menningu okkar og landsmönnum. Fólk er hrætt við að verða minnihlutahópur í eigin landi.“

Tillögurnar sem Wilders lagði fram felast í að hafa herinn við landamærin, að engum nýjum hælisleitenda verði hleypt inni í landið, að hætt verði við fjölskyldusameiningar og að Sýrlendingum með tímabundið dvalarleyfi verði vísað úr landi, þar sem stór hluti Sýrlands telst núna öruggt svæði. Wilders vill einnig koma á sjálfvirkri brottvísun innflytjenda sem dæmdir eru fyrir ofbeldis- eða kynferðisbrot.

Bandalagið milli VVD, PVV, nýstofnaða flokksins NSC og bændaflokksins BBB var ekki myndað fyrr en í júlí í fyrra eftir langar samningaviðræður.

Fara efst á síðu