Fyrst nauðgaði hann stúlku, síðan stakk hann mann í hjartað og núna hefur hann myrt sænskan smábarnafaðir…..

Susie Jessen hjá Danmerkurdemókrötunum skrifar á Facebook um hið hryllilega morð á Íslandsbryggju nýverið í Kaupmannahöfn. Morðinginn var þekktur ódæðismaður frá Afríku. Susie segir málið endurspegla innflyttjendastefnu sem hefur gjörsamlega farið úr böndunum.

Fyrst nauðgaði hann stúlku í framhaldsskóla.

Síðan stakk hann mann í hjartað á skemmtistað.

Og nú hefur hann orðið sænskum fjölskylduföður að bana.

Morðið á Íslandsbryggju er svo hörmulegt að það fyllir mig bæði sorg og reiði! 😡

En það er líka vegna þess að þetta mál endurspeglar innflytjendastefnu sem hefur farið gjörsamlega úr böndunum.

Þetta mál sýnir unga menn í íþróttagöllum sem leggja annað fólk í einelti og ógn, fólk sem fór út í bæ til að eiga ánægjulega kvöldstund.

Í þessu tilviki til að horfa á leik á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu með köldum bjór í dönsku sumarveðri. 💔

Við bregðumst svo harkalega við vegna þess að við höfum heyrt um svona mál ótal sinnum áður.

Ofbeldi. Árásir. Nauðganir. Fórnarlömb. Svik og svindl. Gengi útlendinga sem halda lestarstöðvum og borgarrýminu í heljargreipum og aka um vopnuð á stórum bílum. 😡

Líttu inn í fangelsin – þar sérðu hverjir valda mörgum af stærstu vandamálunum: Glæpamenn af erlendum uppruna frá Miðausturlöndum.

Það þarf að taka mun harðar á svona fólki!

Það er það sem við viljum í Danmerkurdemókrötunum!

Meðal annars að endurskoða alþjóðasamninga sem veita þeim vernd alltof oft.

Og þá verður miklu erfiðara að fá danskan ríkisborgararétt!

Mun meiri hertar aðgerðir! Mun meiri framkvæmdir! Mun minna tal!

Á meðan vinstrimenn sitja hjá og aðhafast ekkert erum það við hin sem viljum grípa til aðgerða.

Við berum mikilvæga ábyrgð! Við verðum að gæta að okkar yndislegu Danmörku. 🇩🇰