Fyrrverandi yfirmaður NATO telur stríð við Rússland orðið líklegra en frið

Rob Bauer aðmíráll, fyrrverandi formaður hermálanefndar NATO, telur hættuna á stríði milli Rússlands og Atlantshafsbandalagsins hafa aukist svo að meiri líkur séu á átökum en að þeim verði afstýrt. Hann hvetur Evrópuríki til að hraða vígbúnaði, auka hergagnaframleiðslu og styrkja innviði samfélagsins. Markmiðið sé að fæla Rússa frá árás, ekki að hefja stríð.

Þetta kemur fram í viðtali við Bauer í hlaðvarpinu Decoding Geopolitics (sjá YouTube að neðan). Bauer var áður yfirmaður hollenska hersins og gegndi formennsku í hermálanefnd NATO frá júní 2021 til janúar 2025. Það er æðsta hernaðarlega embætti bandalagsins.

„Ég tel því miður að líkurnar á stríði við Rússland séu orðnar meiri en líkurnar á því að ekkert stríð verði,“ segir Bauer í viðtalinu.

Hann tekur þó skýrt fram að viðvörunin sé ekki ákall um stríð.

„Ég vil ekki stríð. Ekki misskilja mig. Ég hef oft verið kallaður stríðsæsingamaður. Ég vil ekki stríð.“

Telur Rússa geta undirbúið átök samhliða Úkraínustríðinu

Bauer segir mat á getu Rússa til að ráðast gegn NATO hafa breyst. Áður hafi leyniþjónustur talið að Rússar þyrftu þrjú til fimm ár eftir lok Úkraínustríðsins til að undirbúa slík átök. Nú sé matið að þeir geti byggt upp þá getu á um þremur árum, þótt stríðið í Úkraínu haldi áfram. Hann greinir þar á milli hernaðargetu og pólitísks vilja.

„Hvort þeir séu reiðubúnir til þess er annað mál. En þeir hafa getuna vegna stríðshagkerfis síns.“

Að sögn Bauers framleiðir rússneski hergagnaiðnaðurinn meira af vopnum og skotfærum en herinn notar í Úkraínu. Hann heldur því einnig fram að Rússar séu að byggja upp hersveitir við finnsku landamærin og varðveiti hluta nýframleiddra skriðdreka fyrir önnur verkefni.

Takmörkuð árás gæti reynt á samstöðu NATO

Bauer telur að Rússar gætu séð hag í takmarkaðri árás á aðildarríki NATO til að kanna hvort bandalagið standi saman og bregðist sameiginlega við. Slík árás gæti jafnframt dregið úr vopnasendingum til Úkraínu. Aðildarríkin kynnu þá að telja sig þurfa að halda hergögnum eftir til eigin varna.

Samkvæmt mati hans gæti þetta þjónað tveimur markmiðum rússneskra stjórnvalda: að reyna á samheldni NATO og veikja stuðninginn við Úkraínu. Bauer segir vandann ekki fyrst og fremst vera hvort NATO geti brugðist við fyrstu árásinni. Bandalagið hafi áætlanir um það og muni verja sig. Spurningin sé hvort það geti haldið baráttunni áfram.

„Ef átökin halda áfram vikum, mánuðum eða lengur, getum við þá haldið áfram að berjast?“

Til þess þurfi ekki aðeins hermenn heldur einnig skotfæri, brynvarin ökutæki, flugvélar og framleiðslugetu til að bæta upp mannfall og búnaðartjón.

„Þeir ganga inn í verslunina og hillurnar eru tómar“

Aukin fjárframlög til varnarmála dugi ekki ein og sér, að mati Bauers. Framleiðslugetan þurfi að fylgja með. Hann lýsir stöðunni þannig að varnarmálaráðherrar og herforingjar hafi nú meira fé til ráðstöfunar, en geti ekki fengið nauðsynlegan búnað afhentan nógu fljótt.

„Þeir ganga inn í verslunina og hillurnar eru tómar.“

Bauer nefnir sem dæmi að kaupendur Patriot-flauga geti þurft að bíða til ársins 2033 eða 2034 eftir afhendingu. Slíkur biðtími sé óásættanlegur. Hann vill greiðari fjármögnun hergagnaiðnaðarins, hraðari leyfisveitingar og aukna framleiðslugetu. Viðhorf þess efnis að fjárfestingar í varnariðnaði samræmist ekki sjálfbærni telur hann missa sjónar á afleiðingum stríðs.

„Fjárfesting í vörnum er besta sjálfbærniaðgerð sem til er, því hún hjálpar okkur að koma í veg fyrir stríð,“ segir hann.

Segir mörg ríki hafa vanmetið innrásarhættuna

Í viðtalinu rifjar Bauer upp aðdraganda innrásar Rússa í Úkraínu árið 2022. Hann segir NATO hafa haft ítarlegar upplýsingar um herliðssöfnun við landamærin. Alls hafi 25 aðildarríki lagt daglega til upplýsingar sem mynduðu sameiginlegt mat bandalagsins.

Þrátt fyrir það hafi mörg ríki átt erfitt með að trúa því að innrás yrði að veruleika. Bauer segir reynsluna af röngum upplýsingum um gereyðingarvopn Íraka árið 2003 hafa dregið úr trausti sumra ríkja á fullyrðingum Bandaríkjanna. Hann segir jafnframt að um helmingur þáverandi aðildarríkja hafi síðla árs 2021 hafnað því að færa viðbragðsferli NATO á næsta stig, meðal annars af ótta við að það yki spennuna.

„Fólk hugsaði um hvernig það vildi að heimurinn væri, í stað þess hvernig heimurinn var.“

Bauer hafnar þó þeirri lýsingu spyrilsins að NATO hafi ekki undirbúið sig. Hernaðarlegar áætlanir hafi verið endurskoðaðar frá 2018 og sá undirbúningur gert bandalaginu kleift að bregðast hratt við þegar innrásin hófst.

Vill styrkja innviði og hraða ákvörðunum

Viðbúnaðurinn þurfi að ná til alls samfélagsins, segir Bauer. Orkuöflun, vatnsveitur, matvælabirgðir og stafrænir innviðir séu sums staðar svo háð fáum lykilþáttum að ein bilun eða árás geti haft víðtækar afleiðingar. Hann telur áratuga áherslu á hagkvæmni og lágmörkun kostnaðar hafa aukið þessa viðkvæmni.

„Við héldum að við myndum búa við eilífan frið.“

Bauer kallar einnig eftir ákveðnari forystu og varar við því að nauðsynlegar framkvæmdir stöðvist vegna langvinns ágreinings.

„Við þurfum ákveðnari forystu, án þess að alltaf sé deilt um allt þar til síðasti maður eða kona sem er á móti hefur sagt sitt.“

Hann telur það styrkja lýðræðið að samfélög geti varið sig. Jafnframt þurfi að finna nýtt jafnvægi milli gagnsæis og leyndar um upplýsingar sem geti nýst andstæðingum. Hann segist styðja eftirlit almennings með stjórnvöldum, en ákveðin leynd sé nauðsynleg fyrir öryggi ríkjanna.

Samstaðan sé mesta styrkleikamerki bandalagsins

Bauer lýsir áhyggjum af ágreiningi innan NATO, en tekur ekki undir fullyrðingu spyrilsins um að bandalagið sé sundraðra en nokkru sinni fyrr. Hann minnir á fyrri deilur, meðal annars brotthvarf Frakklands úr samþættri herstjórn NATO árið 1966 og Súezdeiluna á sjötta áratugnum.

„Samstaða okkar er mesti styrkur okkar,“ segir hann og bætir við að sundrung geti að sama skapi orðið veikleiki sem andstæðingur reyni að nýta.

Kjarni skilaboða hans sé að sýna bæði getu og vilja til varna áður en til árásar komi.

„Eina tungumálið sem Pútín skilur er styrkur.“

Fréttin byggist á innsendu afriti af aðgengilegum hluta viðtalsins sem er fyrri opni hluti viðtalsins. Síðari hlutinn er á bak við áskriftarvegg og ekki með hér. Tilvitnanir eru þýddar úr ensku.