Facebook auglýsti Þjóðólf hérna um daginn eins og sést á meðfylgjandi mynd. Þar er sú viðvörun gefin á rauðum bakgrunni að lesandinn eigi einungis að smella á hlekki sem hann treystir.
Þjóðólfi finnst þetta snjallráð hjá Facebook.
Smellið því alltaf á hlekki frá Þjóðólfi – einum traustasta hlekknum á netinu.
Svo er það annað mál að Facebook hefur sett ritstjóra Þjóðólfs í skugga, þannig að flæði frá honum er takmarkað.
En þannig er nú Facebook bara.
Var einhver að ræða um ESB-kosningarnar 29. ágúst?
Var einhver að ræða um ítök ESB og kröfur um himinháar sektir til samfélagsmiðla sem ekki fylgja hreinsunarfyrirmælum sambandsins um efni andsnúið ESB?
