Fullveldið er ekki varanlegt nema það sé varið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins ritaði eftirfarandi færslu á Facebook:

Nú er vika í atkvæðagreiðslu um hvort Ísland skuli sækjast eftir því að verða tekið inn í Evrópusambandið.

Ég hef tekið eftir því að „sjáararnir” virðast stundum hafa meira gaman af áformaðri atkvæðagreiðslu en þeir sem eru í vörn fyrir fullveldið.

Í því felst sögulega tilvísun sem hefur verið þekkt um aldir. Það er auðveldara og jafnvel skemmtilegra að brjóta hluti en að byggja þá upp.

Þegar verið er að brjóta eitthvað niður er hægt halda því fram að verið sé að búa til tækifæri og fjarlægja allt hið slæma.

Þá skiptir engu máli þótt um leið sé verið að fjarlægja allt hið góða, grunninn. sem fyrri kynslóðir lögðu ómælda vinnu og fórnir i að koma á og um leið að koma í veg fyrir tækifærin til að byggja áfram á þeim grunni.

Sjáarar gleðjast yfir því að hafa komið á þeirri ótrúlegu stöðu að margir efist um að það sé okkur fyrir bestu að ráða okkar málum sjálf. Nokkuð sem fáir hafa efast um í amk 200 ár.

Þeir gleðjast yfir því að tekist hafi að færa umræðuna frá tækifærunum sem felast í því að ráða eigin málum í umræðu um hvort fólk vilji ekki sjá hvað er í boði, opna Pandóruboxið, bara til að sjá. Þótt allar staðreyndir sýni hvað það hefur í för með sér.

Hinir, þeir sem þurfa óvænt að verjast, eru einbeittir en undrandi að þurfa að verja það sem barist var fyrir um aldir, oft gegn ofurefli.

Verja það sem sannaði svo gildi sitt, ár eftir ár og áratug eftir áratug, ekki hvað síst á nýliðnum árum.

Við sem viljum verja árangur liðinna alda (og eigum það sum til að ergja okkur á því að hægt sé að stýra umræðu með innihaldslausum umbúðum og tómum frösum) ættum þó að muna það sem forverar okkar vissu:

Fullveldið er ekki varanlegt nema það sé varið.

Við ættum að líta á það sem bæði skyldu og heiður að vera í aðstöðu til að verja það þegar þess er þörf.

Nú gerist þess þörf og það er vika til stefnu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
formaður Miðflokksins