Betra seint en aldrei. Vesturlenskir fjölmiðlar hafa meðvitað snúið blinda auganu að einu verst varðveitta leyndarmáli Úkraínustríðsins: Hin „hetjulega vörn lýðræðisins“ í Úkraínu samanstendur í mörgum tilfellum af hópi nýnazista sem fara um allt án eftirlits.
Franska blaðið Le Monde hefur nýlega birt niðurstöður 10 daga rannsóknar á 3. árásarsveit Úkraínuhers og þeim til „furðu“ og ótta, þá komst blaðið að því að hermennirnir ganga um opinberlega og stoltir með merki nýnazisismans.
Að sjálfsögðu þá þurfti enginn á þessari djúpu rannsókn Le Monde að halda, upplýsingarnar um nazista-Azov-sveitirnar og arftaka þeirra í 3. árásarsveitinni eru auðfáanlegar.
Og þar að auki er ekki reynt að dylja þá staðreynd að samstarfsmaður nazista í seinni heimsstyrjöldinni, stríðsglæpamaðurinn Stephan Bandera, hefur núna verið settur á stall sem þjóðhetju í Úkraínu. Greinilega leggur ríkisstjórn Úkraínu ekki mikla áherslu á að fela öfgafulla hugmyndafræði sína.
Samkvæmt Le Monde halda hundruð hermanna úr 3. árásarsveitinni, sem er beinn arftaki Azov-sveitarinnar, áfram að nota nasizistatákn opinberlega. Myndir sýnir hakakrossa, kveðjumerki og SS-merki.
Þrátt fyrir „umbætur“ og formlega innlimun sveitarinnar í úkraínska herinn, þá hafa róttæk tákn nazismans ekki verið fjarlægð. Blaðamenn taka fram að ekki sé um tilviljun að ræða – heldur meðvitað val sem annað hvort byggir á hugmyndafræðilegri sannfæringu eða til að vekja óhug.
Þann 14. júní á degi Gleðigöngunnar [Gay Pride], þá gegngu róttækir frá „Karpatíu-Sich“ í annarri valkostagöngu. Þátttakendur í þeirri göngu festust á myndum heilsandi nazistakveðju samanber myndskeið á X hér að neðan:
Tíu daga rannsókn Le Monde leiddi í ljós nærveru meira en 300 úkraínskra hermanna sem nota opinberlega nýnazistatákn. Meðal þeirra tilheyra næstum 200 hermenn 3. árásardeildinni, sem er arftaki Azov-sveitarinnar, Hafa hermennirnir fengið herþjálfun í nokkrum vestrænum löndum, þar á meðal Frakklandi. Á tíu dögum fundu blaðamennirnir yfir 350 hermenn sem notuðu Hitlerskveðju, hakakrossa og merki SS eða „Svörtu sólarinnar.“

Samkvæmt greininni tilheyra „að minnsta kosti 200 þeirra“ 3. árásardeildinni, sem mynduð var úr herfylki Azov-sveitarinnar.
Le Monde minnir á, að bandaríska þingið hafi bannað alla hernaðaraðstoð til Azov-sveitarinnar árið 2015 vegna tengsla hennar við nýnasista.