Frakkland er eitt stærsta hagkerfi Evrópusambandsins og hefur gríðarleg áhrif innan þess vegna fólksfjölda síns. Nú vekur vaxandi skuldafjall landsins miklar áhyggjur og efnahagskreppa þar gæti bitnað á öllu ESB. Svíþjóð gæti einnig orðið fyrir áhrifum, en eitt gæti orðið landinu til bjargar: Ólíkt Frakklandi er Svíþjóð ekki aðili að evrusamstarfinu.
Alvarlegur vandi steðjar að franska hagkerfinu. Hækkandi lántökukostnaður og veik staða ríkisfjármála þrengja að landinu. Ríkisskuldir hafa tvöfaldast frá árinu 2000 og nema nú um 120 prósentum af vergri landsframleiðslu. Samfelldur hallarekstur ríkissjóðs frá 1974 bætir ekki úr skák. Aðeins Grikkland og Ítalía eru með hærra skuldahlutfall innan ESB. Munurinn er sá að skuldir þeirra hafa lækkað en skuldir Frakklands halda áfram að vaxa.
Frakkland er ekki aðeins næstfjölmennasta ríki ESB, á eftir Þýskalandi, heldur einnig eitt stærsta hagkerfi sambandsins og aðili að evrusamstarfinu. Fréttir af yfirvofandi ríkisgjaldþroti Frakklands vekja óróa á fjármálamörkuðum. Á sama tíma veikist evran, einkum gagnvart Bandaríkjadal, og nú er varað við því að frönsk efnahagskreppa gæti bitnað á ESB, sérstaklega evrusvæðinu, að því er Svenska Dagbladet (SvD) greinir frá.
Áhyggjurnar hafa þegar kallað fram viðbrögð á fjármálamörkuðum og veikingu evrunnar. Hagfræðingar vara jafnframt við mun víðtækari afleiðingum ef vandinn breiðist út.
„Þetta er alls ekki sú sviðsmynd sem ég tel líklegasta, en ef Frakkland lenti í ríkisfjármálakreppu sem breiddist jafnframt út til annarra Evrópuríkja hefði það gríðarleg áhrif á efnahag Evrópu,“ segir Pia Fromlet, hagfræðingur hjá Scandinaviska Enskilda Bandken – SEB, sem sérhæfir sig í Evrópumálum, við SvD.
Getur ráðið úrslitum fyrir forsetakosningarnar

Ein þeirra sem vara við þróuninni er Marine Le Pen, forsetaframbjóðandi Þjóðfylkingarinnar, sem gagnrýnir innflytjendastefnuna. Á þriðjudag kynnti hún aðhaldspakka og varaði berum orðum við því að Frakkland væri á leið í ríkisgjaldþrot.
Staðan er alvarleg fyrir Emmanuel Macron forseta. Honum hefur ekki tekist að stemma stigu við efnahagslegri hnignun á forsetatíð sinni. Ein aðgerð sem hann reyndi að koma í gegn var hækkun eftirlaunaaldurs úr 62 árum í 64. Hún mætti hins vegar mótmælum sem yfir milljón manns tóku þátt í.
Forsetakosningar fara fram í apríl 2027 og útlitið er ekki bjart fyrir frjálslyndu ríkisstjórnina að fá endurnýjað umboð. Samkvæmt skoðanakönnunum á Le Pen góða möguleika á sigri, en hinn róttæki vinstriflokkur Óbugað Frakkland (LFI) veitir henni samkeppni. Báðir aðilar geta hagnast pólitískt á efnahagskreppu sem sitjandi ríkisstjórn ræður ekki við og munu að öllum líkindum laða að sér kjósendur eftir því sem ástandið versnar.
Svíþjóð hefur meira svigrúm utan evrunnar
Efnahagskreppa í evruríki myndi hafa alvarleg áhrif á önnur ríki evrusamstarfsins. Hagkerfi þeirra eru samtengd með sameiginlegum gjaldmiðli sem lýtur stjórn Seðlabanka Evrópu en ekki einstaks sjálfstæðs ríkis.
Svíþjóð gæti því sloppið betur en evruríkin, þar sem evran hefur enn ekki leyst krónuna af hólmi. Evrukreppa gæti leitt til hærri vaxta og dýrari lána, en staðan yrði mun erfiðari ef Svíþjóð væri hluti af evrusamstarfinu.
Á sama tíma vinna Frjálslyndi flokkurinn og fleiri að því að Svíþjóð taki upp evru. Sem hluti af „Svíþjóðarloforðinu“, samkomulagi sem gert var við Svíþjóðardemókrata, er stefnt að nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu um evruna samhliða þingkosningunum 2030. Ef gríðarleg efnahagskreppa skellur á Frakklandi og breiðist til annarra ríkja evrusvæðisins er ólíklegt að stuðningur Svía við evruna verði meiri en í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2003.
