Ríki geta njósnað um fólk með njósnaforritum eins og Pegasus, útskýrir Pavel Durov, forstjóri Telegram, fyrir Tucker Carlson. Hann notar sjálfur ekki lengur síma. Hann hætti að nota snjallsíma þegar honum var ljóst að hægt væri að njósna um hann með tækinu.
Pavel Durov, forstjóri Telegram, var í viðtali við Tucker Carlson nýlega (sjá myndskeið neðar á síðunni. Samkvæmt Durov geta leyniþjónustur ríkisins hlerað þig með njósnaforritum eins og Pegasus. Hann segir:
„Ef stjórnvöld hefðu þig að skotmarki, þá er mjög líklegt að þau myndu setja upp þennan trójuhest sem kallast Pegasus á síman þinn.
Ég nota ekki síma. Ég hef ekki notað síma í næstum ár. Frakkland tók símann, en jafnvel áður en það gerðist notaði ég ekki símann minn. Ég var ekki með SIM-kort í símanum mínum. Ég nota hann bara til að prófa Telegram appið.“
Durov útskýrir símaleysið meðal annars með því að sími sé afar truflandi og geti hugsanlega ógnað friðhelgi einkalífs hans.
Hér að neðan má fyrst sjá stutt myndskeið með frásögn Durov um að hann noti engan síma, þar sem yfirvöld geta notað símann sem njósnatæki og þar fyrir neðan allt viðtal þeirra Carlson og Durov:
Telegram CEO Pavel Durov explains why he doesn’t use a phone. pic.twitter.com/pPBKeqnc66
— Tucker Carlson Network (@TCNetwork) June 10, 2025
Telegram founder Pavel Durov has effectively been under house arrest in France since he was arrested there ten months ago. For the first time, he explains why.
— Tucker Carlson (@TuckerCarlson) June 9, 2025
(0:00) Being Arrested in France
(10:57) France’s Attempt to Humiliate and Tarnish Durov
(15:54) Did the Russian… pic.twitter.com/mTfNak10eK