Forsætisráðherra Svíþjóðar: Við erum stödd í evrópsku stríði.

Kvenkyns starfsmaður Svíþjóðardemókrata (SD), er sagður hafa dreift „rússneskum áróðursfrásögnum.“ Hana verður að reka frá störfum, ef upplýsingarnar reynast réttar, segir Ulf Kristersson (M), forsætisráðherra Svíþjóðar, við Aftonbladet.

Það er vinstriöfgamiðillinn Expo sem nú bendir á „rússneskan“ starfsmann SD sem samkvæmt miðlinum á að hafa „deilt miklu magni af rússneskum áróðursfrásögnum“. Hún hafi „tengsl við rússnesk tengslanet og dreifi sama áróðri og Kreml notar gegn Vesturlöndum“, fullyrðir Expo.

Samkvæmt Aftonbladet hefur þetta vakið viðbrögð annarra stjórnmálamanna sem krefjast þess að SD grípi til aðgerða.

Einn þeirra er Ulf Kristersson forsætisráðherra.

– Það er ekkert svigrúm fyrir rússneskar áróðursfrásagnir í Svíþjóð. Við erum stödd í evrópsku stríði, segir hann við Aftonbladet og bendir á að hér sé um alvarlegt mál að ræða.

Ef upplýsingarnar reynast réttar er málið svo alvarlegt að reka verður viðkomandi, að mati Kristerssons. Ekki sé hægt að hafa fólk sem dreifir „rússneskum áróðursfrásögnum“ og starfar jafnframt á sænska þinginu.

Að sögn Maria Malmer Stenergard (M), utanríkisráðherra Svíþjóðar, eru upplýsingarnar „gríðarlega alvarlegar“ og Svíþjóðardemókratar verða að „hreinsa þetta út“, segir hún við Aftonbladet.