Forsætiráðherra Spánar hvetur til alþjóðabandalags gegn Donald Trump

Sósíalistinn Pedro Sanchez sem er forsætisráðherra Spánar hvetur núna heiminn til að safna liði til að „berjast gegn Trump og tæknirisunum í Silicon Valley.“ Sanchez ásakar Trump og tæknirisana um að „reyna að nota algert vald sitt yfir samfélagsmiðlum til að stjórna opinberri umræðu og þar af leiðandi aðgerðum stjórnvalda í öllum hinum vestræna heimi.“

Þannig hljóma orð sósíalista og kommúnista eftir að Trump hefur lofað að tryggja málfrelsið, Meta Zuckenberger hefur neyðst til að koma út úr ritskoðunarskápnum og Elon Musk endurheimt twitter úr höndum þöggunarböðla. Stjórnarskrá Bandaríkjanna tryggir málfrelsi einstaklingsins og það er greinilega svo hættulegt að sósíalistar verða að sameinast gegn frelsisgyðju Bandaríkjanna. Sanchez segir:

„Ég vil vera skýr og segja það beint með færri en 280 bókstöfum: lýðræði er ekki ein evra, eitt atkvæði; það er ekki eitt tíst, eitt atkvæði; það er einn einstaklingur, eitt atkvæði. Þess vegna verður Evrópa að rísa upp gegn þessari ógn og verja lýðræðið.“

Sósíalíski Internationalen vill banna X

Þó að Sanchez hafi ekki nefnt Musk á nafn, þá hefur sósíalíski Internationalen, sem hann er forseti fyrir og flokkur hans, Verkamannaflokkur Keir Starmers og Samfylkingin á Íslandi eru aðili að, það að markmiði að banna X í aðildarríkjum ESB. Sósíalistar glötuðu stærsta ritskoðunartæki sínu twitter, þegar Elon Musk tók yfir og breytti í X. Sanchez vældi einnig yfir áhrifum „alþjóðlegra öfgahægrimanna“ sem hann segir leiðtoga eins og Javier Milei frá Argentínu og Viktor Orban frá Ungverjalandi vera. Telur Sanchez að þeir hafi komist til valda og viðhaldi völdum vegna skorts á ritskoðun á samfélagsmiðlum.

Spillingarhneyksli ríkisstjórnar Spánar

Ríkisstjórn Sánchez sætir þrálátri gagnrýni vegna ásakana um spillingu og sniðgöngu lýðræðislegra meginreglna. Rætt er um meinta spillingu upp á 30 milljónir evra í samningum sem tengjast Covid-19 og eiginkonu hans, Begoña Gómez. Hann hefur einnig verið sakaður um að hafa með ólögmætum hætti náð yfirráðum yfir opinberri sjónvarpsstöð Spánar, RTVE, til að reyna að þagga niður alla gagnrýni á ríkisstjórnina.

Leiðtogar stjórnarandstöðunnar á Spáni hafa ekki farið dult með skoðanir sínar. Alberto Núñez Feijóo, leiðtogi Partido Popular, sakar Sánchez um að vinna á andlýðræðislegan hátt. Einnig er rætt um að sækja Sanchez fyrir dómstól en ekkert verið gert enn í þeim málum.

Fara efst á síðu