Flokkur fólksins hvetur Frakklandsforseta að „gera kjarnorkusprengjurnar klárar fyrir Rússland“

Morgunblaðið uppljóstrar í dag um færslu framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins, Heimis Más Péturssonar, á X sem hvetur Emmanuel Macron Frakklandsforseta til að senda hermenn í Úkraínu og setja kjarnorkuvopnin í skotstöðu svo hægt sé að skjóta kjarnorkusprengjum á Rússland hvenær sem er. Mikið hefur verið rætt um ömurlegt ástand í þingflokki Viðreisnar en núna vill systurflokkur fólksins ekki vera minni.

Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af færslu Frakklandsforseta á samfélagsmiðli X í gær, þá skrifar Heimir Már Pétursson eftirfarandi hvatningu til Macron:

„Kæri Macron, hættu þessum ræðuhöldum og sendu hermenn til að berjast fyrir Úkraínu og Evrópu. Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin til tafarlausrar notkunar.“

Á Linkedin lýsir Heimir starfsferli sínum þannig:

„Reyndur sjónvarpsfréttamaður með langan starfsferil í ljósvakamiðlun. Fjölmiðla- og samskiptafræðingur með færni í rannsóknarvinnu, Microsoft Excel, stjórnun, Microsoft Word og sölu. Starfaði sem kynningarfulltrúi Flugmálastjórnar Íslands í fimm ár og verkefnastjóri Þúsaldarnefndar forsætisráðuneytisins árið 2000. Var kynningarfulltrúi Iceland Express árin 2011–2012. Einn af stofnendum Hinsegin daga í Reykjavík og framkvæmdastjóri hátíðarinnar fyrstu ellefu árin. Framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins frá 1996 til 1999. “

Fyrirmynd sósíalista og hinsegin fólks?

Núna virðist fyrrverandi framkvæmdastjóri allaballa og svo hinsegin daga í Reykjavík í meira en áratug halda að hann geti stjórnað kjarnorkuárás Frakka á Rússland. Að það sé ofmat á Flokki fólksins að halda að Macrón fari að ráðum hans og kasti heiminum í bál og brand þriðju heimsstyrjaldarinnar er trúlega það vægasta sem hægt er að segja um þetta tiltæki framkvæmdastjórans. Greinilega er hann ekki vitsmunalega haldbær til að íhuga afleiðingar kjarnorkustyrjaldar í Evrópu þegar hann pantar eina slíka af Frökkum. Sem fjölmiðlamaður er hann svo andlega heilaþveginn að einfaldar staðreyndir komast ekki inn á milli eyrnanna. Hér eru nokkrar staðreyndir sem gervigreindin tók fram um samanburð á kjarnorkuveldi Frakklands og Rússlands sem er 15 sinnum stærri sprengjukraftur en Frakkland:

Rússar eiga um 15 sinnum fleiri kjarnaodda í hernaðarbirgðum en Frakkar, samkvæmt áætlunum FAS fyrir 2026. Tölurnar eru áætlaðar, enda er nákvæmur fjöldi leynilegur.

BurðarkerfiRússlandFrakkland
Langdrægar kjarnorkueldflaugar á landiJáNei
Kjarnorkuvopn úr flugvélumJáJá
Kafbátar fyrir langdrægar kjarnorkueldflaugar134

Kafbátaflotar, ekki fjöldi samtímis á vakt. Heimildir: FAS 2026; Nuclear Notebook, Rússland 2026 og Frakkland 2025. („Útsettir“ merkir hér odda á eldflaugum eða á flugstöðvum kjarnorkuherafla — ekki að allir séu tilbúnir til tafarlausrar notkunar. Flokkarnir skarast og á ekki að leggja saman).

Flokkur fólksins reynir að slá þingflokki Viðreisnar við í eymd og volæði. Kjarnorkustríð er að sjálfsögðu dauðlegra en vælið og krókódílatárin í viðreisn. En hvað segja kjósendur? Eru það menn eins Heimir Már sem eiga að fara með málefni landsmanna?