Röð skotárása víðs vegar um Svíþjóð á síðustu dögum hefur vakið miklar áhyggjur meðal almennings, eftir að fólk var skotið og drepið á opinberum stöðum um hábjartan dag.
Samkvæmt fréttum frá sænskum miðlum var ungur fótboltamaður skotinn til bana í Örebro, á meðan önnur skotárás átti sér stað á torgi i Solna, Stokkhólmi, þar sem margt fólk var statt. Þá voru einnig tilkynnt tilfelli um morð á 15 ára dreng í Malmö og 18 ára mann i Tyresö suður af Stokkhólmi þar sem einstaklingar voru fluttir á sjúkrahús eftir skotárásir. Í einu tilvikinu var grunuð kona myndauð eftir árás nálægt íþróttasvæði. Þá var táningspiltur myrtur við fótboltavöll í Vårby Gård, Stokkhólmi. Allar þessar skotárásir og morð hafa gerst á fáeinum dögum og allar á almannafæri, í dagsbirtu nema morðið í Örebro, þar sem venjulegt fólk var á ferli.
Lögregla hefur í sumum tilvikum enn ekki handtekið neinn vegna árásanna, sem ekki er bætandi ofan á það öryggisleysi sem íbúarnir upplifðu áður. Íbúar lýsa vaxandi ótta í daglegu lífi. Einn íbúi sagði í samtali við fjölmiðla:
„Þetta er ekki lengur eitthvað sem gerist á næturnar eða í afskekktum hverfum – þetta er að gerast fyrir framan okkur öll.“
Annar bætti við:
„Fólk þorir ekki lengur að sitja á kaffihúsi eða fara yfir torgið án þess að líta yfir öxlina.“
Engin breyting virðist vera á vexti glæpahópanna með auknu ofbeldi á almannafæri. Engu er líkar, þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagnstæða, en að yfirvöldum sé sama um ástandið. Sumir spyrja sig hvernig stendur á því, að ríkisstjórnin lýsi ekki yfir neyðarástandi og noti herinn til að kveða niður glæpahópana, sem þegar hafa hreiðrað um sig í stofnunum samfélagsins. Önnur lönd hafa sýnt að það er hægt.
