Páll Vilhjálmsson gerir grein fyrir fjórum ástæðum fyrir afsögn Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra í pistli dagsins á blog.is:
„Fjórar knýjandi ástæður fyrir afsögn Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra.
1. Eina stefnumál utanríkisráðherra var að gera Ísland að ESB-ríki. Í tvö ár er fátt gert í utanríkismálum nema að vinna að ESB-aðild. Þjóðin hafnaði þeirri stefnu með skýrum hætti 29. ágúst.
2. Utanríkisráðherra hefur stórskaðað tengsl Íslands og Bandaríkjanna með orðræðu sem verður ekki skilin á annan veg en and-bandarísk. Engin leið er að bæta fyrir nema Þorgerður Katrín axli sín skinn. Afsögn er alþjóðlegt táknmál stjórnmálanna og merkir að ábyrgð er tekin á mistökum.
3. Gagnvart Evrópusambandinu lofaði utanríkisráðherra upp í ermina á sér, að Íslendingar myndu samþykkja aðildarviðræður. Íslenskt nei á höfuðdaginn gerði ESB að alþjóðlegu aðhlátursefni. Ríkjasambandið fær ekki einu sinni viðræður við smáþjóð, hvað þá að aðild komi til greina. Álitshnekkir ESB varð gríðarlegur þann 29. ágúst. Brussel lítur alvarlegum augum á pólitíska handvömm utanríkisráðherra Íslands. Þorgerði Katrínu er ekki treyst í höfuðborg Evrópusambandsins. Orð hennar eru ómarktæk.
4. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur nær ekki vopnum sínum á meðan Þorgerður Katrín situr embætti utanríkisráðherra. ESB-uppgjörið sem Þorgerður Katrín neitar þjóðinni um er dragbítur á öll málefni ríkisstjórnarinnar.
Páll skrifar að hver og ein af ofantöldum ástæðum séu sjálfstætt tilefni til afsagnar Þorgerðar Katrínar:
„Teknar saman eru undur og stórmerki að utanríkisráðherra sitji enn í embætti rúmum þremur vikum eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.”
Páll Vilhjálmsson rekur síðan, hvernig Þorgerður Katrín afneiti raunveruleikanum og hafi í samvinnu við RÚV sem hann kallar aðgerðamiðstöðina á Efstaleiti, sett á flot gamla frétt um að Trump Bandaríkjaforseti hafi hringt í þáverandi forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson, til að ræða stöðu Íslands á Norður-Atlantshafi. Einnig hafi verið gripið til annarra þekktra aðgerða eins og að kynna ekki-þingmál um kjördæmisskipan og þingmannafjölda hvers kjördæmis. Allt gert til að þyrla upp ryki svo augljós vanhæfni utanríkisráðherrans yrði ekki rædd meðal þingmanna og almennings. Páll skrifar síðan:
„Ósigurinn 29. águst veitti ríkisstjórninni svöðusár. Örugg og fumlaus viðbrögð við ósigrinum gátu mögulega komið í veg fyrir ígerð og drep. Ríkisstjórn Kristrúnar fær þau eftirmæli að tapa stórt í Evrópumálum og bregðast illa við. Er þjóðin fellir dóm eiga valdhafar ekki að svara með hroka. Þjóðin sló met í kosningaþátttöku á höfuðdaginn. Er til of mikils mælst að ráðherrar leggi við hlustir?”
