Fiskveiðistefna ESB og yfirráðin yfir stærstu auðlind Íslands

Innan Evrópusambandsins er það sambandið sjálft sem fer með óskipt vald yfir verndun lífrænna sjávarauðlinda. Við inngöngu Íslands yrði sjávarútvegurinn því felldur undir sameiginlega fiskveiðistefnu ESB og veigamikill hluti ákvörðunarvaldsins færður frá íslenskum stjórnvöldum til stofnana sambandsins.

Þetta skiptir Ísland meira máli en flest önnur Evrópuríki. Efnahagslögsaga Íslands er um 760 þúsund ferkílómetrar, ríflega sjöfalt stærri en landið sjálft. Yfirráð yfir þessu víðfeðma hafsvæði og auðlindum þess unnust ekki fyrirhafnarlaust heldur með áratugalangri landhelgisbaráttu.

Arfleifð landhelgisbaráttunnar

Ragnar Árnason, prófessor emeritus í hagfræði, fjallar um þetta í grein sinni „Efnahagslögsaga þjóðarinnar og aðild að ESB“ í Morgunblaðinu í gær.

Hann rifjar upp hvernig Íslendingar færðu fiskveiðilögsöguna út í áföngum og tryggðu sér að lokum 200 sjómílna efnahagslögsögu. Átökin við Breta og fleiri ríki snerust ekki aðeins um línur á korti heldur um rétt þjóðarinnar til að stjórna og nýta mikilvægustu náttúruauðlind sína.

Með þessum sigri öðlaðist Ísland yfirráð yfir hafsvæði sem er margfalt stærra en landið. Ragnar telur að við aðild að ESB myndi Ísland afhenda sambandinu yfirráð yfir lífrænum sjávarauðlindum á að minnsta kosti 90% núverandi efnahagslögsögu þjóðarinnar.

Óskipt vald ESB

Þessi viðvörun byggist á skýrum ákvæðum sáttmála Evrópusambandsins. Samkvæmt 3. grein sáttmálans um starfshætti ESB hefur sambandið óskipt vald á sviði verndunar lífrænna sjávarauðlinda innan sameiginlegu fiskveiðistefnunnar. Það þýðir að ESB eitt getur sett bindandi löggjöf á því sviði. Aðildarríkin geta aðeins gert það sjálf að því marki sem sambandið veitir þeim heimild.

Sameiginlega fiskveiðistefnan tekur meðal annars til ákvörðunar heildarafla, úthlutunar veiðiheimilda, verndunar fiskistofna, tæknilegra reglna um veiðar, eftirlits og samskipta við ríki utan ESB um sameiginlega stofna.

Meginreglan er jafnframt sú að fiskiskip aðildarríkjanna hafi jafnan aðgang að hafsvæðum og auðlindum sambandsins, með fyrirvara um kvóta, gildandi stjórnunarráðstafanir og sérstakar undantekningar.

Ein mikilvægasta undantekningin tekur til 12 sjómílna strandsvæðis. Þar geta aðildarríkin við tiltekin skilyrði takmarkað veiðar við skip sem hafa hefðbundin veiðiréttindi. Utan þess svæðis gildir hins vegar sameiginlegt regluverk ESB.

Hafsvæðið íslenskt á pappírnum – en Brussel ræður för

Við ESB-aðild yrði efnahagslögsaga Íslands ekki eign Evrópusambandsins. Efnahagslögsagan yrði áfram íslensk samkvæmt alþjóðlegum hafrétti. Fiskistofnarnir yrðu heldur ekki formlega eign ESB. En Ísland hefði ekki lengur rétt um að ákveða hvernig lífrænar sjávarauðlindir innan lögsögunnar væru verndaðar og nýttar. Stærsti hluti löggjafar- og ákvörðunarvaldsins flyttist inn í sameiginlegt stjórnkerfi sambandsins og Ísland sem áður ákvað sjálft um fiskveiðar í eigin landhelgi, þyrfti að slást úr 0,1% sæti um hverja bröndu sem dregin er úr hafinu.

Íslensk stjórnvöld hefðu því ekki lengur óskorað lokaorð um stjórnun fiskveiða við landið. Það er kjarni málsins. Veiðarnar myndu áfram ráðast af úthlutuðum kvótum, sögulegum veiðiréttindum, reglunni um hlutfallslegan stöðugleika og þeim ákvæðum sem kynnu að nást í aðildarsamningi Íslands. Ísland gæti reynt að semja um sérlausnir eða varanlegar undanþágur.

Engin slík niðurstaða liggur hins vegar fyrir. Ekki er heldur hægt að fullyrða um að önnur aðildarríki samþykktu að Ísland héldi óbreyttu og einhliða valdi yfir fiskveiðiauðlindinni. Samþykki til undanþága er háð stuðningi allra aðildarríkja og nú þegar hafa mörg þeirra sagt fyrirfram að þau munu aldrei samþykkja undanþágur fyrir Ísland.

Undanþágur frá grundvallarreglum sambandsins verða að vera skýrar og helst varanlegar. Pólitísk fyrirheit sem fáum svo mjög að heyra þessa dagana afngilda ekki slíkri réttarvernd.

Dæmið um 27 veiðidagana

Deilan um veiðidaga botnvörpuskipa í vestanverðu Miðjarðarhafi sýnir hversu víðtækt vald stofnanir ESB hafa yfir sjávarútvegi aðildarríkjanna.

Framkvæmdastjórn ESB lagði í lok árs 2024 til að grunndögum tiltekinna togara yrði fækkað úr um 130 í 27 árið 2025. Það jafngilti 79% skerðingu og olli miklum mótmælum, einkum á Spáni.

Lokasamkomulagið varð mildara en upphaflega tillagan. Sett var upp mótvægiskerfi sem gerði skipum kleift að endurheimta veiðidaga með sértækari veiðarfærum og öðrum verndarráðstöfunum. Spænsk stjórnvöld segja að þannig hafi flotinn getað náð svipuðum fjölda veiðidaga og árið áður.

Þótt útkoman hafi verið mildari en ESB lagði upphaflega af stað með, þá sýnir hún að ESB getur lagt til og samþykkt mjög umfangsmiklar takmarkanir á veiðum innan lögsögu aðildarríkjanna.

Hver færi með lokaorðið?

Umræðan um ESB-aðild snýst því ekki aðeins um hugsanlegan efnahagslegan ávinning eða aðgang að mörkuðum. Ísland hefur þegar aðgang að innri markaði ESB að verulegu leyti í gegnum EES-samninginn. Spurningin er hvort þjóðin vilji færa ákvörðunarvald yfir lífrænum auðlindum hins gríðarlega hafsvæðis umhverfis landið inn í sameiginlegt kerfi þar sem Ísland yrði eitt smáríkja meðal 27 aðildarríkja.

Landhelgisbaráttan snerist um að tryggja Íslendingum sjálfum yfirráð yfir fiskimiðunum. Áður en ákveðið verður að hefja aðildarviðræður þarf því að liggja skýrt fyrir hvaða völd stjórnvöld eru reiðubúin að færa til ESB, hvaða undanþágur þau telja mögulegt að fá og hvað gerist ef slíkar undanþágur reynast tímabundnar eða nást alls ekki. Ríkisstjórnin hefur engar slíkar upplýsingar gefið umfram pólitískar yfirlýsingar um að allt muni verða í lagi og þau sjá til þess að Ísland haldi yfirráðum yfir lögsögunni þótt ESB ráði einhliða samkvæmt Lissabonsáttmálanum. Lokaorð Ragnars Árnasonar eru:

„Við þessi fyrirheit er hins vegar ekki unnt að standa nema sjálfum stofnsáttmála ESB (TFEU) sé breytt, a.m.k. þannig að Ísland verði honum varanlega og örugglega undanþegið hvað efnahagslögsöguna snertir. Úr því að forsætis- og utanríkisráðherra ætla að tryggja yfirráð Íslands yfir auðlindum sínum en ganga samt í ESB hlýtur ESB að hafa lýst vilja sínum til að breyta viðkomandi atriði í stofnsáttmála sínum. Væru það stórtíðindi ef satt væri. Ef svo er ekki virðist hins vegar langsótt, svo ekki sé meira sagt, að hefja aðildarviðræður við ESB.“