Þrenning helgra texta íslams samanstendur af Kóraninum, Hadith, dæmum úr lífi Múhameðs og Sira, ævisögu hans. Þegar þrenningi er flokkuð og greind verður ljóst að fimm meginreglur eru grundvöllur íslams:
- Allt íslam er byggt á Þrenningunni—Kóraninum, Sira (ævisögu Múhameðs) og Hadith (hefðum hans).
- Flestar af kenningum íslams eru stjórnmálalegs eðlis, ekki trúarlegs.
- Íslam skiptir heiminum í múslima og kafíra (aðrir en múslimar)
- Hið pólitíska íslam hefur alltaf tvær mismunandi aðferðir til að koma fram við kafíra—tvíhyggjusiðfræði. Það er hægt að misnota kafíra á versta veg eða koma fram við þá eins og góðan nágranna.
- Kafírar verða að lúta íslam í öllum stjórnmálum og opinberu lífi. Sérhver þáttur í siðmenningu kafíra verður að lúta hinu pólitíska íslam.
Þessar fimm meginreglur má setja í fimm orð—Þrenning, stjórnmál, kafírar, tvíhyggja og undirgefni. Þessi fimm orð skýra og auðvelda skilning á pólitísku íslam.
Hingað til hefur verið erfitt að skilja íslam, vegna þess að það virðist flókið og mótsagnakennt. En þegar þú sérð hvernig þessar fimm meginreglur virka, þá fellur allt á sinn stað. Flækjustig verður einfaldleiki. Ringulreið verður regla.
Allt efni CSPII er byggt á þessum fimm meginreglum.
Þú getur lesið meira um þessar fimm meginreglur hér:
1. Þrenningin: Íslam er ekki bara Kóraninn – það er líka Sunna Múhameðs, sem er að finna í ævisögu hans (Sira) og hefðum hans (Hadith). Kóraninn, Sira og Hadith skilgreina íslam. Lög íslam eru dregin af þessum textum.
2. Hið pólitíska íslam: Kenningin um kafíra (fólk sem er ekki múslimar) og krefst stjórnmálalegra (ekki trúarlegra) yfirráða. Kóraninn helgar 64% af texta sínum kafírum.
3. Kafír: Kenningar íslam skipta heiminum í þá sem trúa á Múhameð og Allah (múslima) og þá sem gera það ekki (kafíra). Kafírar lúta öðrum siðareglum en múslimar og það má ræna þá, myrða, pynta, hneppa í ævilangt þrælahald, krossfesta og fleira.
4. Tvíhyggja: Tekist er á við öll mótsagnakennd erindi í Kóraninum með forgangi – seinna versið er betra eða sterkara en hið fyrra. Hins vegar, þar sem þau eru hin fullkomnu orð Allah, eru þau öll sönn – þannig höfum við tvíhyggjurökfræði þar sem tvær mótsagnakenndar staðreyndir geta báðar verið sannar.
5. Undirgefni: Íslam þýðir undirgefni og múslimi þýðir sá sem er undirgefinn. Hins vegar er undirgefni stjórnmálaleg sem og trúarleg: Íslam krefst þess að kafírar lúti í öllu þáttum hins opinbera lífs. Sérhver hluti af menningu kafíra er móðgun við Allah.

Hér er að finna hlekki í aðrar greinar sem tengjast skóla Þjóðólfs í íslam
