Eystrarsalt orðin púðurtunna: NATO sendir orrustuþotur á loft til að stöðva fugla

Fuglarnir fá NATO-þotur á eftir sér

Annan hvern dag virðist drónaótti grípa um sig í Evrópu, sem hluti af linnulausri hræðsluherferð gegn hinum vondu Rússum. Það þarf varla að taka fram að oft kemur í ljós að hernaðardrónarnir sem villast inn í Finnland, Rúmeníu, Eistland og Litháen eru í raun úkraínskir – og oftast eru alls engir drónar á ferð.

Þann 13. september, varð ótti við að stríðið í Úkraínu breiddist inn á yfirráðasvæði NATO til þess að neyðarviðvörun var send í farsíma og flugvelli lokað í Litháen. Orrustuþotur voru sendar í loftið í snarhasti til að stöðva hóp meinlausra fugla.

Það er ekkert nýtt að Litháar bregðist óhóflega við „drónum“.

Munið þið eftir þessu frá október 2025? Mitt í drónamóðursýki um alla Evrópu var flugvellinum í Vilníus lokað klukkustundum saman. Ástæðan? Loftbelgir sem fluttu smyglaðar sígarettur.

Reuters greindi frá:

„Litháísk stjórnvöld sögðu að það sem talið hafði verið dróni í lofthelgi landsins fyrr á sunnudag, og varð til þess að yfirvöld lokuðu flugvellinum í Vilníus og NATO kallaði út að minnsta kosti eina orrustuþotu, hefði reynst vera fuglahópur.

Það kemur í ljós að hvatvísir ratsjárstarfsmenn Eystrasaltsríkisins sjá „ratsjármerki frá fuglum á svipaðan hátt og frá drónum“.

„Orrustuþota hafði verið kölluð út frá Šiauliai í norðurhluta Litháens, að sögn miðstöðvarinnar. Þar er ítalski flugherinn nú með aðsetur vegna þátttöku sinnar í loftvarnaverkefni NATO yfir Eystrasaltsríkjunum.“

Líkur sækir líkan heim – og fuglahópur getur kallað fram hernaðarviðbrögð.

Sky News greindi frá:

„Eftir að grunur vaknaði um drónaferð lokaði Litháen alþjóðaflugvellinum í Vilníus á sunnudag. Viðvöruninni var aflétt og flugvöllurinn opnaður aftur innan 38 mínútna, eftir að áhöfn NATO-þotunnar hafði staðfest með sjónrænum hætti hvað var á ferðinni.“