Evrópuþingið vill kanna hryðjuverkaskráningu samtaka tengdum Múslímska bræðralaginu

Evrópuþingið samþykkti á fimmtudag ályktun þar sem hvatt er til mats á því hvort setja eigi einstaklinga og samtök tengd Múslímska bræðralaginu á hryðjuverkalista ESB. Ályktunin hlaut 381 atkvæði gegn 167, en 15 þingmenn sátu hjá.

Samþykktin, sem var afgreidd í Strassborg 8. október, kallar eftir sameiginlegri evrópskri stefnu gegn íslaamavæðingu stofnana og áhrifum tengslanets Múslímska bræðralagsins. Jafnframt er hvatt til þess að samtökum tengdum Ráði múslíma í Evrópu verði meinaður aðgangur að stofnunum sambandsins.

Ályktunin er pólitísk yfirlýsing en ekki bindandi löggjöf. Hún setur því hvorki bræðralagið í heild né einstaka aðila sjálfkrafa á hryðjuverkalista. Krafan er að ráð ESB meti hvort tengdir aðilar uppfylli lagaleg skilyrði slíkrar skráningar.

Tillagan var borin fram af Evrópska þjóðarflokknum, EPP. Hún felur einnig í sér kröfur um aukið eftirlit með styrkjum ESB, rekjanleika fjármagns og að komið verði í veg fyrir að opinbert fé renni til íslamískra áhrifaneta. Með íslamavæðingu er átt við viðleitni til að ná áhrifum innan stofnana og félagasamtaka.

Andstaðan mest meðal jafnaðarmanna, grænna og vinstrimanna

Samkvæmt greiningu CERIF á nafnakalli skiptust 167 mótatkvæði þannig:

ÞingflokkurAtkvæði gegn
Jafnaðarmenn, S&D84
Græningjar og Frjálsa bandalag Evrópu, Greens/EFA40
Vinstriflokkurinn, The Left35
Óháðir þingmenn4
Renew Europe3
Evrópski þjóðarflokkurinn, EPP1

Eina mótatkvæðið úr EPP kom frá Finnanum Sirpu Pietikäinen. Þrír þingmenn Renew greiddu atkvæði gegn: Oihane Agirregoitia Martínez frá Spáni, Michael McNamara frá Írlandi og Vlad Vasile-Voiculescu frá Rúmeníu. Atkvæðagreining CERIF.