Í nýju viðtali segir Gústaf Níelsson sagnfræðingur að Evrópusambandið myndi breyta Íslandi í húskarl ef landið gengi í ESB. Stærðarmunurinn er svo gríðarlegur, reglugerðafarganið svo yfirþyrmandi, skattarnir svo óyfirstíganlegir og sambandið sjálft á hnjánum langt fyrir aftan keppinauta í Asíu og Bandaríkjunum að þetta svo kallaða sæti við borðið sem jásinnar telja æðra hásæti almættisins væri í reynd hlutverk húskarls í samandsríki von der Leyen. Verkefni húskarlsins væri að skrúbba gólf forseta framkvæmdastjórnarinnar sem enginn hefur kosið. Saga Ísland hefur því miður að geyma slíka reynslu sem forðast ber hið bráðasta til að hún verði ekki endurtekin.
Gústaf Níelsson bendir á að við Íslendingar sitjum nú þegar við eigið borð sem geri okkur sýnileg í hinum stóra heimi, þar sem við getum sjálf gert viðskiptasamninga við ríki á blússandi hagvaxtarskeiði t.d. í Asíu, Kína og Bandaríkin. Sérstaklega bendir Gústaf á hversu farsæl viðskipti hafa verið á öllum sviðum við Bandaríkjamenn, bæði viðskiptalega og að sjálfsögðu á sviði öryggismála, en þar dregur ESB stysta stráið.
„Af hverju eigum við að vera að skipta út okkar eigin stól fyrir einhvern pínukoll í Brussel?“
Þátturinn hófst á umræðu um innrás aðallega marokkómanna inn til Spánar sem hefur sett allt Schengen samstarfið í upplausn. Ítalía hefur komið á eigin eftirliti gagnvart Spáni og það þyrftu fleiri lönd innan ESB að gera. 22 aðildarríki boðuðu til neyðarfundar og það er ein eftirlætisiðja starfsmanna ESB að blaðra á slíkum endalausum fundum, hvort svo sem það er neyðarástand í flóttamannamálum, loftslagsmálum eða hatursorðræðu hjá frjálsum fjölmiðlum sem ESB reynir að útiloka eins og X.

Gústaf segir að „forystumenn Evrópusambandsins verði að fara að viðurkenna að um innrás sé að ræða enda engir flóttamenn sem flýi frá konum og börnum. “ Vegna skilgreiningar sambandssinna um að lágar fæðingartölur réttlæti milljónir manns frá útlöndum á velferðakerfi aðildarríkja ESB, þá minntist Gústaf að hann hefði frétt af rannsókn Svía fyrir 60 árum sem gæti mögulega bent á einn þátt skýringarinnar:
„Þá datt vísindamönnum í hug að búa til hið fullkomlega músasamfélag. Og músasamfélagið var þannig að mýsnar höfðu holur fyrir sig með réttu rakastigi, þær höfðu nóg að éta og allt var bara í lukkunnar velstandi í þessu samfélagi. En það sem gerðist var það að samfélagið leið undir lok. Og það var vegna þess að karlmýsnar í samfélaginu, þær geltust allar. Vegna þess að samfélagið hafði það of gott, þá var engin barátta lengur í þessu samfélagi. Ég minnist oft þessarar rannsóknar og finnst hún svolítið skondin og ég hef verið að hugleiða það, hvort Evrópuríkin eða Vesturlönd almennt séu bara komin á þetta stig.
Smelltu á spilarann hér að neðan til að hlusta á viðtalið:
