Steven Eugene Kuhn er bandarískur fyrrverandi hermaður úr Persaflóastríðinu, rithöfundur og viðskiptaráðgjafi sem hefur starfað víða í Evrópu. Hann birtir einnig pólitísk myndskeið þar sem hann gagnrýnir meðal annars leiðtoga Evrópusambandsins og stefnu Vesturlanda í Úkraínustríðinu. Þjóðólfur birtir pistil hans um ástandið í Evrópu (sjá myndskeið að neðan):
„Einhver verður að segja þetta upphátt: Leiðtogar Evrópu eru strengjabrúður. Hagkerfi þeirra eru að hrynja og þeir eru að telja ykkur trú um ágæti stríðs sem þeir vita að þeir geta hvorki unnið né fjármagnað. Þýskaland er að drukkna í skuldum sem nema yfir 2,5 billjónum.
Frakkland greiðir meira í vexti af skuldum sínum en það ver til varnarmála. Þetta eru ekki samsæriskenningar heldur opinberar tölur. Samt standa Macron, Merz, von der Leyen og Kaja Kallas þarna brosandi og láta eins og Evrópa sé sterk og sameinuð.
Þau vita að svo er ekki. Allir sem fylgjast með vita að svo er ekki. Tölurnar sýna að svo er ekki.
Og þetta er mín trú, mín skoðun: Í hvert sinn sem Evrópubúar hætta að styðja stríðið í Úkraínu gerist skyndilega eitthvað. Sprenging, eldsvoði, æsifrétt.
Atvik sem á að höfða til tilfinninga en ekki rökhugsunar, eins og lestarsprengingin í Póllandi. Margir telja að þar hafi verið um sviðsetta árás að ræða til að koma sökinni á aðra, og það tel ég líka. Hún fellur nefnilega að sama mynstri og Evrópa hefur séð aftur og aftur: Að framkalla reiði og fá almenning aftur til fylgis með því að birta samstundis fyrirsögnina „Þetta voru Rússar“.
Ræðum nú fólkið sem knýr þetta áfram. Macron, fyrrverandi bankamaður. Von der Leyen, embættismaður alla starfsævina. Kallas, fágaður stjórnmálamaður, alltaf tilbúin fyrir myndavélarnar. Og Merz — segjum það bara: BlackRock.
Það eitt ætti að fá alla á jörðinni til að lyfta brúnum. Þetta fólk hefur enga raunverulega reynslu af forystu, engan bakgrunn í rekstri og axlar enga ábyrgð. Þetta eru málpípur sem komið er fyrir framan myndavél til að gefa til kynna stöðugleika á meðan löndin hrynja að baki þeim. Og áttið ykkur á þessu: Þegar andlitið er fallegt er handritið yfirleitt ljótt.
Þau beina athygli ykkar annað með fáguðu yfirbragði, brosum og ræðum. En á bak við tjöldin er verið að hola Evrópu að innan. Og skattgreiðendur fjármagna eigin hnignun. Þýskaland er kjölfesta Evrópu.
Ef Þýskaland fellur undan vaxandi skuldabyrði og samdrætti í iðnaði fellur Evrópa. Og þegar Evrópa fellur missa Bandaríkin sinn sterkasta bandamann og það efnahagslega mótvægi við Kína og Rússland sem hann veitir. Samt vilja þessir leiðtogar láta Úkraínu fá milljarða til viðbótar — peninga sem þeir eiga ekki, orrustuþotur sem þeir hafa ekki og stuðning sem þeir geta ekki haldið úti.
Þetta er skrípaleikur. Leið til að soga til sín fé, leikur sem valdastéttin leikur á meðan venjulegir borgarar greiða reikninginn. Og ætlast er til að þið klappið á meðan þau keyra lönd ykkar í þrot.
Ef þið viljið kafa dýpra í þetta og kryfja það almennilega, komið þá til mín á Patreon svo við getum rætt þetta af hreinskilni, án ritskoðunar og alls hávaðans.”
