Ragnar Árnason, prófessor emeritus í hagfræði, útskýrir loftslagskerfi Evrópusambandsins ETS. Hann segir ETS kerfið byggt á áætlun ESB um loftslagslosun allt að 55% fyrir 2030 miðað við 1990. Þar geta fyrirtækin keypt og selt kolefnislosunarrétt á kolefnislosunarmarkaði, þar sem þau fyrirtæki sem eiga erfitt með að minnka kolefnislosun borga hinum sem geta minnkað kolefnislosun fyrir kolefnislosunarheimildir. Þannig borga sum fyrirtæki fyrir losun á meðan sum geta hagnast á kerfinu.
Ragnar segir kerfið gert fyrir aðildarríki Evrópusambandsins og taki ekki mið af eyjum í Atlantshafi eins og Íslandi. En í gegnum EES samningin hafi Íslendingar gefið eftir og gengið með í þetta ETS kerfi ESB með þeim afleiðingum að vöruflutningar til landsins hafa hækkað og kosti Ísland í dag meira en tollalækkanir sambandsins. Þversögn sé í því að hafa gert samning til að auka viðskipti og frelsi í viðskiptum sem enda í þrengri viðskiptamöguleikum en áður.
Ragnar Árnason telur að reyna verði að semja í það minnsta svo að Íslendingar séu ekki að greiða skatt til ESB í gegnum þetta kerfi og ef ekkert verði að gert munu félög eins og Flugleiðir fara í gjaldþrot og fyrirtækið jafnvel keypt upp af til dæmis bandarísku flugfélagi sem ekki þarf að greiða loftslagsskatta til ESB. Ef ekki væri hægt að semja gegnum EES samninginn ætti að segja upp þessu samstarfi Íslands við ESB varðandi losunarkerfið.
Ef Ísland gengur í ESB höfum við enga möguleika á að hafa áhrif á þennan skatt og værum alfarið í höndum stjórnvalda sambandsins. Ragnar Árnason spyr:
Hvers vegna skyldum við halda að ríki Evrópu myndu fara eitthvað betur með okkur en Danmörk gerði á sínum tíma?
Smelltu á spilarann hér að neðan til að horfa á þáttinn:
