ESB verður að leggja sannanirnar á borðið

Stækkunarstjóri Evrópusambandsins, Marta Kos, segir mikla upplýsingaóreiðu og falsfréttir hafa verið í kringum þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst. Þetta eru alvarleg ummæli embættismanns Evrópusambandsins um lýðræðislega þjóðaratkvæðagreiðslu í sjálfstæðu ríki. Þau kalla einfaldlega á svar:

Hvaða falsfréttir?

Og síðan aðra spurningu:

Hverjar eru sannanirnar fyrir því að þær hafi haft áhrif á íslenska kjósendur?

Það nægir ekki að tala almennt um „upplýsingaóreiðu“ þegar þjóð hefur nýlokið við að greiða atkvæði um stórt pólitískt álitamál. Ef stækkunarstjóri ESB telur að íslenska þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið umlukin falsfréttum ber henni að tilgreina þær. Hvaða fullyrðingar voru rangar? Hver setti þær fram? Hvernig var sýnt fram á að þær væru rangar? Voru erlendir aðilar að verki? Hvernig dreifðust upplýsingarnar? Og síðast en ekki síst: Hvaða gögn sýna að þær hafi haft áhrif á niðurstöðuna?

Þangað til slíkar sannanir liggja fyrir eru þetta ásakanir, hugarburður – ekki sannaðar staðreyndir.

Afstaða kjósenda stendur

Íslenskir kjósendur voru spurðir hvort hefja ætti aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Niðurstaðan var skýr: 52,8% sögðu nei. Það er lýðræðisleg niðurstaða sem stendur óháð því hvort embættismönnum í Brussel líkar hún eða ekki.

Það er sérstaklega varhugavert ef farið er að skýra niðurstöðu kosninga sem er óhagstæð Evrópusambandinu með óljósum tilvísunum til falsfrétta, popúlisma eða erlendra stjórnmálahreyfinga án þess að nokkur gögn séu lögð fram því til sönnunar.

Lýðræðið felst nefnilega ekki aðeins í rétti borgaranna til að greiða atkvæði. Það felst einnig í skyldu valdhafa til að virða niðurstöðuna.

Lýðræðisskjöldurinn og vald yfir „upplýsingaóreiðu“

Ummæli Mörtu Kos verða enn athyglisverðari þegar þau eru sett í samhengi við Lýðræðisskjöld Evrópusambandsins. Miðstjórn ESB kynnti Lýðræðisskjöldinn, European Democracy Shield, árið 2025. Markmið hans er meðal annars að vernda kosningar og „heilleika upplýsingasvæðisins“ og berjast gegn erlendum áhrifum, upplýsingaóreiðu og falsfréttaherferðum.

Meðal þeirra úrræða sem miðstjórnin hefur boðað eru evrópsk net staðreyndavakta, aukið samstarf yfirvalda um kosningar og sérstök viðbrögð við upplýsingaóreiðu og erlendum afskiptum. Miðstjórnin segir sjálf að tilgangurinn sé að tryggja að borgarar geti myndað sér skoðanir frjálslega og hafi aðgang að traustum upplýsingum.

Einmitt þess vegna verður að gera miklar kröfur til miðstjórnarinnar sjálfrar þegar háttsettur embættismaður hennar talar um „falsfréttir“ í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu. Sá sem hyggst berjast gegn falsfréttum verður sjálfur að byggja fullyrðingar sínar á sannanlegum staðreyndum. Annars skapast sú hætta að hugtakið „upplýsingaóreiða“ verði ekki tæki til að verja lýðræðið heldur merkimiði á pólitískar skoðanir sem valdhöfum líkar ekki.

Jón Magnússon spyr: Átti Ísland málsvara?

Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður vekur í grein sinni „Átti Ísland málsvara?“ athygli á öðru atriði. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd þegar Marta Kos lét ummælin falla. Jón spyr hver hafi verið við borðið til að mótmæla þessari lýsingu og leiðrétta hana. Hann segir engar fregnir hafa borist af því að íslenski utanríkisráðherrann hafi mótmælt. Það er réttmæt spurning.

Ef fulltrúi miðstjórnar ESB gefur í skyn á alþjóðlegum ráðherrafundi að upplýsingaóreiða og falsfréttir hafi sett mark sitt á nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi, hlýtur íslenskur utanríkisráðherra að kalla eftir skýringum. Ekki vegna þess að banna eigi gagnrýni á íslenskar kosningar. Heldur vegna þess að ásakanir um að lýðræðislegt ferli hafi verið mengað af falsfréttum verða að byggjast á gögnum.

Sönnunarbyrðin liggur hjá þeim sem ásakar

Málið þarf ekki að vera flókið. Marta Kos hefur sett fram fullyrðingu. Þá ber að biðja hana að leggja fram gögnin.

  • Hvaða falsfréttir?
  • Frá hverjum?
  • Hvaða erlendu afskipti?
  • Hvaða sannanir?
  • Og hvaða gögn sýna áhrif þeirra á niðurstöðu kosninganna?

RÚV greinir frá ummælum Kos, en þar koma ekki fram tiltekin dæmi eða sannanir fyrir því hvaða falsfréttir hún á við. Þangað til þau gögn eru lögð fram stendur ein staðreynd óhögguð:

Íslenska þjóðin kaus. Meirihlutinn sagði nei.

Það er ekki „upplýsingaóreiða“. Það er niðurstaða lýðræðislegrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Þótt þjóðaratkvæðagreiðslan kunni síðar að vera dæmd ólögleg vegna valdníðslu utanríkisráðherrans, þá breytir það engu um að landsmenn greiddu atkvæði í góðri trú og útkoman sýnir raunverulegan vilja þjóðarinnar.