ESB-þingið er upptekið við að leysa vandamál sem væru ekki til ef ESB væri ekki til

Eftirfarandi er ræða ESB-þingkonunnar Christine Anderson sem er á ESB-þinginu fyrir Valkost fyrir Þýskaland. Þetta var ein af útiræðum hennar á kosningafundi í Þýskalandi nýverið. Bara svona til að gefa fólki hugmynd um hverning tóngangurinn er í þeirri Evrópu sem Jásinnarnir vilja ólmir komast í.


Já, góðan og blessaðan daginn frá mér líka. Svo mikið hefur nú þegar verið sagt að ég þarf í raun varla að halda ykkur lengur, en kannski tekst mér samt einhvern veginn að bæta einhverju við.

Þið vitið að ég kem frá Evrópuþinginu og ég segi alltaf að það sé stærsta geðveikrahæli heims, dömur mínar og herrar. Ímyndið ykkur þessa stofnun: í grundvallaratriðum er þetta umræðuhringur siðferðilega sannfærðra heimsbjargvætta þar sem verið er að leysa vandamál sem við hefðum alls ekki ef ESB væri ekki til. Þanig lítur dæmið út.

En það er heldur ekkert leyndarmál að samband mitt við Evrópuþingið er dálítið stríðslegt, sérstaklega við hina svokölluðu forseta þessa ESB, mína allra bestu vinkonu Ursula von der Leyen. Já, Ursula von der Leyen og ég eigum nú orðið ákaflega innilegt óvinasamband. Ég held að henni líði ekkert sérstaklega vel þegar ég kem inn í þingsalinn og hún situr þar. Hún veit þá að ég er væntanlega að fara að tala og þá leggur hún eyrun aftur. Oftar en einu sinni hefur hún meira að segja farið úr þingsalnum rétt áður en ég steig í ræðustólinn.

Ursula von der Leyen er huglaus kýr

Hún er huglaus kýr, segi ég ykkur, og að auki svívirðileg fram úr öllu hófi. Nú mætti auðvitað halda að í lýðræðisríki væri hægt að kjósa óvinsælan forseta frá völdum aftur. Jæja, vandamálið með Ursula von der Leyen er að hún hefur alls ekki verið kjörin, að minnsta kosti ekki af mér og ég held ekki af ykkur heldur. Eða er það öðruvísi? Kusuð þið þessa konu? Sjáið þið. Samt situr hún þarna, og nú á öðru kjörtímabili.

En það ætti nú þegar að hafa spurst út að hlutirnir ganga dálítið öðruvísi fyrir sig á Evrópuþinginu en þeir ættu að gera í lýðræðisríki eða venjulegu þjóðþingi. Skoðum bara hvað gerðist fyrir fáeinum, já, fyrir tveimur vikum í Ceuta. Þar storma bara allt í einu 50 eða 60 þúsund manns yfir ytri landamæri Evrópu, allt fer í neyðarástand, og við í ESN-þinghópnum sóttum auðvitað strax um aukafund Evrópuþingsins. Við höfum þann rétt sem þinghópur.

Það var bara eitt lítið vandamál. Slíkur aukafundur hefði þurft að vera boðaður af svokallaðri COP, forsetaráðstefnunni, sem er nokkurn veginn sambærileg við öldungaráðið eins og menn þekkja það úr þýska sambandsþinginu. En rétturinn til að boða þessa COP saman liggur aðeins hjá forseta þingsins. Og ef hún gerir það ekki, þá verður einfaldlega engin COP. Og ef COP kemur ekki saman, hvað verður þá ekki? Enginn aukafundur.

Allt getur verið komið í algert óefni en Evrópuþingið er ekki einu sinni fært um að koma saman til þess að ræða þetta brjálæði. En við þurfum auðvitað ekkert að hafa áhyggjur. Þeir fóru víst allir heim aftur. Þessir 50 eða 60 þúsund. Hversu vitlaus halda þeir eiginlega að við séum? Þið trúið því ekki í alvöru að fólk leggi af stað guð má vita hvaðan, nái síðan að synda fram hjá girðingunni og fari svo bara heim aftur daginn eftir. Þetta hlýtur bara að vera grín. Það gerðist ekki í lífinu. En svona er Evrópuþingið: þá verður bara enginn fundur.

Önnur saga snýst síðan um kosningaloforð mitt til ykkar: að á þessu kjörtímabili yrði komið á fót rannsóknarnefnd vegna alls kórónubrjálæðisins. Það er alls ekki svo auðvelt á Evrópuþinginu. Á fylkisþingum og í sambandsþinginu duga venjulega 20 eða 25 prósent þingmanna, eftir því hvað starfsreglurnar segja. Sama á í raun við á Evrópuþinginu. 20 prósent duga. Og við höfðum þau auðveldlega. Þannig gat ég staðið við þetta kosningaloforð. Vandamálið er bara að 20 prósent stofna ekki rannsóknarnefnd. Þau geta aðeins farið fram á hana. Síðan þarf þingið sjálft að samþykkja að stofna hana. Og það þarf meirihluta á þinginu til þess. Hvaða vitleysa er þetta eiginlega? Þingið er jú yfirleitt meirihlutastuðningur ríkisstjórnarinnar.

Christine Anderson heldur umrædda ræðu á kosningafundi í Þýskalandi.

Lýðræðið í Brussel er er hrein og bein svívirðileg blekking gagnvart almenningi

Í þýska sambandsþinginu kaus meirihluti þingsins Friedrich Merz. En æðsta hlutverk þings, að minnsta kosti í lýðræðisríki, á að vera að hafa eftirlit með ríkisstjórninni. Og hvernig á það eiginlega að ganga? Hvernig á þing sem að meirihluta styður ríkisstjórnina að hafa eftirlit með ríkisstjórninni? Einmitt. Það gerir það ekki. En jafnvel þetta var okkur ekki veitt. Við fengum ekki einu sinni atkvæðagreiðslu á Evrópuþinginu um stofnun þessarar rannsóknarnefndar. Málið var einfaldlega grafið í áðurnefndri COP, forsetaráðstefnunni, fyrir luktum dyrum, án nokkurs gagnsæis.

Þar situr auðvitað líka meirihluti. Já, meirihluti sem hefur engan áhuga á því að upplýsa neitt. Þetta, dömur mínar og herrar, er ekki lýðræði. Þetta, dömur mínar og herrar, er sýndarlýðræði. Þetta er ódýr eftirlíking og ódýr framhlið lýðræðis. Og þið tókuð eflaust eftir því að ég talaði ekki um „lýðræðið okkar“. Því það er einmitt það sem þessi stofnun er. Þetta eru fulltrúar „lýðræðisins okkar“. Og mér dettur í raun aðeins í hug það sem Walter Ulbricht sagði á sínum tíma:

„Það verður að líta lýðræðislega út, en við verðum að hafa allt í okkar höndum.“

Og þetta, dömur mínar og herrar, er það lýðræði sem er stundað í Brussel. En þetta er hrein og bein svívirðileg blekking gagnvart almenningi. Það er stóra vandamálið. Og þess vegna verður að losna við þessa stofnun í eitt skipti fyrir öll. Helst í gær.

Ég ætla aðeins að rifja upp með nokkrum stuttum setningum þetta óbærilega tímabil sem hófst árið 2020. Hvílík sundrung varð í landinu okkar. Hvernig var farið með borgarana? Þeir voru sviptir grundvallarréttindum sínum. Ekki nóg með það. Grundvallarréttindunum var breytt í forréttindi sem þú gast unnið þér inn ef þú gerðir nákvæmlega það sem ríkisstjórnin vildi að þú gerðir.

Þeir eiga allir að vera leiddir fyrir dómstóla og dæmdir

Grundvallarréttindi eru ekki nammi sem kastað er til hunds þegar hann hefur hlýtt skipunum. Grundvallarréttindi eru tryggð réttindi. Afsakið. Grundvallarréttindi eru lögfest og tryggð í stjórnarskrárbundnum réttindum. Og sérhver einstaklingur hefur þessi grundvallarréttindi. Hvort sem ríkisstjórninni líkar það betur eða verr. Og sérstaklega í kreppu þarf að gæta þess að grundvallarréttindin hafi gildi umfram allt annað. Það gerðist ekki, dömur mínar og herrar.

Og þess vegna má með fullum rétti segja að þessi ríkisstjórn, hvort sem hún situr í Berlín eða hin svokallaða ríkisstjórn sem situr í Brussel, standi ekki með báða fætur á grundvelli stjórnarskrárinnar. Þetta eru óvinir stjórnarskrárinnar, dömur mínar og herrar. Og þeir eiga allir að vera leiddir fyrir dómstóla og dæmdir þar. Þannig á þetta að ganga.

Við sjáum nú einmitt í Bandaríkjunum hvernig þetta getur gengið fyrir sig. Fauci. Ó, nú er virkilega farið að þrengja að honum. Og smám saman kemur í ljós hvað þeir vissu í raun. Og hvernig þeir tóku okkur öll í nefið. Og hvernig þeir blekktu okkur kerfisbundið frá upphafi til enda. Allt kemur upp á yfirborðið, dömur mínar og herrar. Og þess vegna stend ég hér í dag og hef í raun aðeins eina kröfu eftir:

Allir sem tóku þátt í þessu brjálæði, hvort sem það voru Spahns þessa heims, Lauterbachs þessa heims eða Ursulur von der Leyen þessa heims, eiga allir heima í fangelsi, dömur mínar og herrar. Og þess vegna, ef okkur tekst ekki að kjósa Ursula von der Leyen frá völdum, þá sendum við hana bara fyrir dómstóla og síðan í fangelsi.

Ursula von der Leyen, inn í fangelsi með þig, þar átt þú heima.

Nú held ég að ég hafi látið nægilega mikið ganga á, svo ég ætla að ljúka máli mínu. En þetta verður næsta krafa mín og við næsta tækifæri sem ég fæ á Evrópuþinginu ætla ég að segja þetta nákvæmlega við Ursula von der Leyen. Ég ætla að endurtaka þetta og segja henni það beint.

Og héðan í frá ætla ég að einbeita mér að því að koma þessari konu þangað sem hún á heima: bak við lás og slá, og helst þannig að henni verði ekki hleypt út aftur.

Kærar þakkir, kærar þakkir.