ESB kaupir sér velvild „skoðanamyndandi aðgerðahópa“ eins og RÚV


Páll Vilhjálmsson blaðamaður og fremsti bloggari landsmanna skrifar um þá uppljóstrun, að RÚV tekur við fjármagni frá ESB sem veitt er til að kaupa ritstjórnarstefnu hugþekka áherslumálum ESB.

Páll telur að viðtaka RÚV á ESB-peningum, að ekki sé sagt mútum, veki spurningar um tilverugrundvöll ríkisfjölmiðilsins.


Páll Vilhjálmsson skrifar:

RÚV fær ESB-fjármagn til skoðunarmyndunar

„RÚV tekur við fjármagni frá Evrópusambandinu, ESB, sem veitt er til að kaupa ritstjórnarstefnu hugþekka áherslumálum ESB. Viðtaka RÚV á ESB-peningum, að ekki sé sagt mútum, vekur spurningar um tilverugrundvöll ríkisfjölmiðilsins.

Rekið er í viðtengdri frétt að ESB hefur notað fjármuni til að kaupa sér velvild ,,skoðanamyndandi aðgerðahópa“. Ekki kemur á óvart að litið er á RÚV sem skoðanamyndandi aðgerðahóp. Ríkisfjölmiðillinn er miðlægur í byrlunar- og símamálinu sem er til meðferðar hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd alþingis. Þar er um að ræða byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar, stuld á síma hans og afritun símans á Efstaleiti, höfuðstöðvum RÚV. Með leynd var unnið með stolin gögn úr síma skipstjórans og skrifaðar tvær útgáfur af sömu frétt til birtingar í Stundinni og Kjarnanum. Tilgangurinn var að koma höggi á Samherja, og íslenska útgerð almennt.

Um árabil þróast RÚV í þá átt að verða ,,skoðanamyndandi aðgerðarhópur“ þar sem fagleg sjónarmið og hlutlæg efnisumfjöllun er látin lönd og leið en jaðarmálefnum lyft á stall í krafti yfirburðastöðu RÚV. Skoðanamyndun í þágu vinstriflokka er reglan á Efstaleiti.

Viðtaka RÚV á ESB-fjármagni gerir ríkisfjölmiðilinn ótrúverðugan í öllum málum sem snúa að Evrópusambandinu. Það er sérstaklega alvarlegt í ljósi fyrirhugaðar þjóðaratkvæðagreiðslu sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hyggst efna til um aðildarsamninga við ESB.“

Fara efst á síðu