ESB-elítan í Reykjavík mun aldrei vinna fyrir hagsmunum Íslands

Það var athyglisvert að sjá muninn á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Jáið vann í Reykjavík með 51.8% á móti 48.2% Nei en á landsbyggðinni vann Neiið með 61,3% á móti 38.7% já. Enginn veit nákvæmlega hversu stór hluti þeirra sem kusu já í Reykjavík styðja í reynd aðild Íslands að ESB. Ef baráttan hefði fengið að halda áfram í eina til tvær vikur má leiða líkum að því að jáið hefði einnig sigrað í Reykjavík og landið allt orðið rautt (sjá Íslandsmynd).

Bændur og sjómenn eru hetjur Íslands, þróttur þess og sál. Þeir hvika ekki fyrir fagurgala, tálsýnum eða hótunum. Skýringin á jái Reykjavíkur er að finna í útþenslustefnu og vinnubrögðum Evrópusambandsins til að binda til sín staðbundna elítu með peningum og framaloforðum. Þar hefur ESB tekist áætlunin og tengt stofnanir eins og RÚV og Háskóla Íslands við valdakerfi sitt sem skýrir skyndilegt bann háskólans á boðuðum fyrirlestri Dr. Carl Baudenbacher í skólanum og stöðugan ESB-áróður ríkisfjölmiðilsins.

Það var táknrænt að Sýn lagði upp laupana eftir atkvæðagreiðsluna. Núna trónir RÚV nær einoka á fjölmiðlamarkaðinum á Íslandi. Einokar auglýsingamarkaðinn, fær himinháar fjárhæðir frá skattgreiðendum til rekstursins og í ofanálag milljónir evra frá Evrópusambandinu í alls kyns gæluverkefni. Stjórnendur og starfsmenn RÚV eru orðnir háðir Evrópusambandinu eins og grófar aðfarir ríkisfjölmiðilsins sýna bæði ljóst og leynt gegn ýmsum baráttumönnum Nei-hliðarinnar sýna. Morgunblaðið er eini stóri miðillinn sem enn er óháður og stundar heiðarlega blaðamennsku.

Þessi lýðræðishalli höfuðborgarsvæðisins er árangur af áratuga uppbyggingu kerfis einstaklinga sem margir lifa á styrkjum Evrópusambandsins og bregðast til varnar kerfinu og stöðu sinni þegar ESB kallar. Við höfum öll séð hegðun utanríkisráðherrans sem og forsætisráðherrans í þessum efnum og það vekur óhug að vita til þess að utanríkisráðherrann virðist hafa gefið loforð sem skuldbinda íslenska ríkið til hægri og vinstri erlendis án aðkomu þings og þjóðar. Alþingi verður að krefjast afléttingar leyndar á gögnum um þau mál svo þjóðin verði upplýst um samninga utanríkisráðherrans og hægt verði að snúa þeirri refskák við.

Þessi aðferð ESB til uppbyggingar og styrktar eigin valdakerfis sést í öllum höfuðborgum áhrifasvæða valdstjórnarinnar í Brussel. Með peningum skattgreiðenda erlendis eru viðkvæmir einstaklingar keyptir hérlendis. Miðstjórn ESB stjórnar peningagreiðslum sem pólitísku valdatæki. Það sést bæði á refsigjöldum til þeirra sem taka ekki á móti kvótainnflytjendum samkvæmt ESB, löglegum greiðslum er haldið inni í skyni að þvinga fram skaða fyrir stjórnarandstæðinga sambandsins eins og Viktor Orbán í Ungverjalandi og sektir á samfélagsmiðla sem miðla öðrum skoðunum en ESB er þóknanlegt eins og X.

Þessi ítök ESB til beinna afskipta í innanlandsmálum, þar sem ESB felur sig á bak við keypta einstaklinga í opinberum stofnunum er eins og krabbameinskýli á lýðveldinu sem bara stækkar og bíður eftir réttu augnabliki til að drepa lýðræðið og sjálfstæða ákvarðanatöku viðkomandi ríkis. ESB sækist eftir valdstjórn í allri álfunni og þróunin er fyrir löngu orðin óhugnanleg eins og sést á stafrænu einræði sambandsins með eftirliti með öllum samskiptum íbúanna á Internet ásamt stafrænum passa fyrir alla. Eini sambærilegi samanburðurinn á þessu kerfi er við alræðiskerfi kínverska kommúnistaflokksins sem vakir yfir skoðunum almennings allan sólarhringinn svo kommúnistar og ofbeldissveitir þeirra geta gripið inn í málin og hindrað að íbúarnir geri uppreisn.

Það er í anda ESB að hunsa vilja landsmanna gegnum ríkisstjórn sem neitar að draga aðildarumsóknina formlega til baka. Tryggja á möguleika á nýju áhlaupi á þjóðina þegar rétt tækifæri gefst að mati miðstjórnar ESB. Þjóðin verður að vera sérstaklega á varðbergi gagnvart svo slóttugum embættismönnum sem brugga henni slík launráð að ESB geti síðar tekið völdin á Íslandi. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar vita greinilega ekki sitt rjúkandi ráð og þrátt fyrir tal um „sigur lýðræðisins” og „lýðræðisveislu” þá plotta þeir um bókun 35 og sögur ganga um kæru ESB gegn Íslandi fyrir „brot á EES-samningnum.” Sjálfir sýna þeir enga ást á lýðræðinu með því að hunsa löðrunginn frá þjóðinni og sitja áfram eins og ekkert hafi gerst.

Það er sérstakt rannsóknarverkefni að rannsaka peningagreiðslur frá ESB til stofnana og einstaklinga á Íslandi. Þær gefa vísbendingu um hverjir stunda myrkraverk fimmtu herdeildarinnar á Íslandi. Þjóðin þarf að girða fyrir þessa leið miðstjórnar ESB til að tryggja sér völdin á Íslandi.