Zia Yusuf, talsmaður Reform UK í innanríkismálum og fyrrverandi formaður flokksstjórnar, gagnrýnir hér fyrirhugaðar breytingar á reglum um fjárframlög til stjórnmálaflokka, sjá YouTube að neðan. Textinn birtist einnig undir nafni hans á vef Reform UK þann 17. september 2026, undir fyrirsögninni „Labour is launching an existential assault on parliamentary democracy“. Lesa grein Yusuf.
Þetta eru mikilvæg skilaboð um endalok lýðræðis í Bretlandi. Óháð stjórnmálaskoðunum þínum þarftu að vita hvað er nú í húfi. Þú hefur líklega séð að Reform-flokkurinn fékk tvö metframlög í þessari viku. Framlögin komu frá breskum ríkisborgurum og voru fullkomlega lögleg þegar tekið var við þeim. Verkamannaflokkurinn dregur það ekki í efa.
Það sem Verkamannaflokkurinn gerir nú er að hraða afgreiðslu nýrra laga sem hann hyggst láta gilda afturvirkt til að gera framlögin ólögleg. Bókstaflega að breyta reglunum eftir á til að reyna að gera pólitískan andstæðing gjaldþrota.
Það má enginn velkjast í vafa: Þetta á sér ekkert fordæmi í nútímasögu breskra stjórnmála. Raunar þarf að fara aftur til ársins 1641 til að finna eitthvað sambærilegt. Það ár samþykkti þingið lög sem dæmdu Strafford jarl sekan og sviptu hann réttindum. Lög samin fyrir einn mann til að refsa honum fyrir athafnir sem voru ekki glæpir þegar hann framdi þær. Hann var síðan hálshöggvinn á Tower Hill.
Jafnvel þingmennirnir sem greiddu atkvæði með lögunum vissu að þetta var til skammar. Næstu fimmtíu árin, í gegnum borgarastyrjöld og byltingu, leitaðist þjóðin við að tryggja að aldrei yrði aftur hægt að beita þinginu sem vopni gegn einstaklingnum.
Þetta er sú leið sem Andy Burnham fetar nú aftur. Með þessu hrynur sjálf hugmyndin um réttarríkið. Með þessu hrynur lögmæti þessarar réttkjörnu ríkisstjórnar.
Heilagt, þótt óskráð sé, samkomulag liggur að baki átta alda stjórnskipulegu frelsi Breta. Það var innsiglað með Magna Carta árið 1215: Engan frjálsan mann má handtaka eða svipta eignum sínum nema samkvæmt lögmætum dómi jafningja hans og lögum landsins.
Lögum landsins — í nútíð. Ekki þeim lögum sem krúnan ákveður eftir á að hún hefði viljað hafa í gildi.
Lögin eru reglur sem borgararnir eiga að haga lífi sínu eftir, ekki afturvirk gildra sem þingið leggur til að knésetja pólitískan keppinaut.
Með því að beita þinginu sem vopni til að samþykkja afturvirk lög í þeim tilgangi að gera pólitískan andstæðing gjaldþrota stígur Andy Burnham skref sem ekki verður aftur snúið frá.
Að breyta reglunum í dag til að banna athöfn sem var lögleg í gær rífur upp sjálfar undirstöður réttarríkisins.
Tilraun Verkamannaflokksins til að beita afturvirkri löggjöf, með breytingum á kosningalagafrumvarpinu Representation of the People Bill, til að gera framlög óheimil sem voru fullkomlega heimil þegar tekið var við þeim, er árás á tilverugrundvöll þingræðisins.
Gleymið áróðri Verkamannaflokksins um erlend áhrif og rafmyntir. Þessi framlög koma frá breskum ríkisborgurum og ekki eitt penní var gefið í rafmynt. Þetta eru reykský sem eiga að fela raunverulegan ásetning ríkisstjórnar Verkamannaflokksins: Að beita hreinum yfirburðum sínum á löggjafarþinginu til að gera þann flokk gjaldþrota sem ógnar henni mest í kosningum.
Andy Burnham vill ekki að þú ákveðir við kjörkassann hver stjórnar þessu landi. Hann vill beita þinginu sem vopni til að knésetja andstæðinga sína áður en þú færð tækifæri til þess.
Ólíkt Bandaríkjunum hefur Bretland enga skriflega stjórnarskrá sem verndar okkur gegn valdaóðum forsætisráðherra. Í reynd eru engin takmörk fyrir því hvað þingið getur gert, engin takmörk fyrir því hvað valdaóður forsætisráðherra getur gert, svo lengi sem hann hefur stuðning nægilega margra þingmanna.
Ef sitjandi ríkisstjórn skapar það fordæmi að hún geti endurskrifað reglur um fjármál stjórnmálaflokka afturvirkt til að tæma bankareikninga stjórnarandstöðuflokks, tekur við nýr og skelfilegur veruleiki í Bretlandi.
Þegar réttaröryggi hefur verið fórnað fyrir grímulausa flokkshagsmuni eru engin mörk lengur. Stjórnmál hætta að snúast um að sannfæra kjósendur innan skynsamlegra og fyrirsjáanlegra leikreglna. Þau verða að hreinni valdabaráttu þar sem sigurvegarinn breytir einfaldlega lögunum til að eyðileggja möguleika þess sem tapar á að keppa við hann.
Þingið fer með æðsta vald, en því valdi var aldrei ætlað að verða að kjörnu einræði sem refsar pólitískum andstæðingum afturvirkt. Ef þingið heimilar að þessi aðferð verði lögfest hefur það ekki bjargað lýðræðinu frá áhrifum peninga í stjórnmálum. Það hefur rústað sjálfu réttarríkinu sem heldur lýðræðinu á lífi.
Hugsaðu um þetta svona: Þú ekur eftir vegi. Skiltin segja að hámarkshraðinn sé 30 mílur á klukkustund og hraðamælirinn sýnir 29. Ríkisstjórnin lækkar síðan hámarkshraðann í 20 mílur, lætur breytinguna taka gildi daginn áður en þú ókst eftir veginum og ákærir þig fyrir hraðakstur.
Þetta er það sem Verkamannaflokkurinn er nú að gera. Nema hvað miklu, miklu meira er í húfi. Og hugleiddu hvert þetta leiðir. Ef afturvirk lög eru ásættanleg þegar þeim er beint gegn Reform, eru þau ásættanleg þegar þeim er beint gegn hverjum sem er.
Ríkisstjórn framtíðarinnar gæti ákveðið að framlög verkalýðsfélaga til Verkamannaflokksins undanfarinn áratug hefðu verið ólögleg. Hún gæti ákveðið að aðild þín að stjórnmálaflokki væri í sjálfu sér refsivert brot og látið refsiákvæðið gilda aftur til dagsins sem þú gekkst í flokkinn.
Þeir sem fagna í dag yrðu fyrstir til að uppgötva að þegar vopn hefur verið smíðað skiptir engu máli í höndum hvers það er.
Þetta er Bretland, landið sem bauð spænska flotanum, Napóleon og Hitler birginn fremur en að gefa þessar grundvallarreglur upp á bátinn. Milljónir Breta lögðu líf sitt í sölurnar til að verja þær.
Ef þú vilt búa í Bretlandi þar sem atkvæði þitt skiptir máli, sendu þá þingmanninum þínum tölvupóst og segðu honum hvað þér finnst um tilraun Verkamannaflokksins til að brjóta niður lýðræði okkar.
