Meme a la Íris Erlingsdóttir.
Upphafsmaður Bókunar 35 hjá síðustu ríkisstjórn, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi utanríkisráðherra, ræðst með skætingi og óyrðum á hópinn sem kærði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur núverandi utanríkisráðherra fyrir landráð.
Þórdís Kolbrún skrifar á facebook:
„Þessa menn er ekki hægt að taka alvarlega, en það sem þeir hafa gert er alvarlegt. Að saka utanríkisráðherra um að svíkja þjóð sína er birtingarmynd pólitískra öfga. Fyrir utan hversu ómerkileg þessi árás er gagnvart embættinu, þá er hún móðgun við allar þær þjóðir sem upplifað hafa afdrifarík svik eigin borgara í þágu óvina.
Hin raunverulega árás á lýðveldið okkar felst í þessari sneypuför sem farin er annað hvort af brjóstumkennanlegum óvitaskap eða fáheyrðri illgirni. Annað er málefnaleg og hreinskilin umræða um alþjóðamál, Evrópusambandið og Bókun 35. Ræðum stöðu okkar og áskoranir af hreinskilni, en sökum ekki ráðherra um landráð. Það hefur afleiðingar alþjóðlega. Þetta er aumkunarvert uppátæki.“
Ónauðsynlegt að formæla andstæðingum
Fjöldamargir hafa athugasemdir við þessa færslu hennar eins og til dæmis Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi Hæstaréttadómari. Hann skrifar:
„Er nauðsynlegt að formæla mönnum á þann hátt sem þú gerir, fyrir það eitt að vera á annarri skoðun en þú um lögfestingu þessarar bókunar?
Svaraðu frekar þessum spurningum:
1. Leiðir regla frumvarpsins ekki til þess að reglur ESB muni í vissum tilvikum ganga framar yngri lögum sem Alþingi setur?
2. Felst ekki í þessu skerðing á fullveldi landsins?
3. Telur þú að kjörnir alþingismenn megi samþykkja slíkt?
4. Ef þeir gera það er þá engin hætta á að slíkt endurtaki sig síðar?
5. Eru það ekki pólitískar öfgar að tala til andstæðinga þínna í málinu eins og þú gerir í þessari færslu þinni?
6. Ertu tilbúin til að skerða fullveldi þjóðarinnar í því skyni að afla tekna fyrir landsins lýð? Heldur þú virkilega að þetta muni efla þig pólitískt þegar frá líður?Vænti svara áður en þetta dapurlega mál kemur til afgreiðslu á Alþingi.“
Þórdís reyndi að svara en Jóni Steinari fannst svörin rýr í roðinu:
„Takk fyrir svörin, þó að þau séu frekar rýr í roðinu. Aðalspurningin var um það hvort regla frumvarpsins leiddi ekki til þess að reglur ESB muni í vissum tilvikum ganga framar yngri lögum sem Alþingi setur? Orð frumvarpsins hljóða beint um þetta, enda væri frumvarpið óþarft ef ekki er verið að ná þessum tilgangi. Svar þitt við þessu er skrítið. Ég veit vel að það eru einmitt íslensk lög sem Alþingi setur sem eiga að víkja fyrir eldri reglum frá ESB. Þetta er raunar kjarni málsins. Hin svörin sýnast mér vera bara já og nei svör sem engu svara í reynd.“
Fullveldi þjóðarinnar er ekki ‘aumkunarvert uppátæki“
Ágústa Árnadóttir skrifar:
„Að kalla borgara ‘aumkunarverða’, ‘óvita’, ‘öfgamenn’ og ‘illgjarna’ fyrir það eitt að spyrja hvort stjórnarskrá sé virt sýnir nákvæmlega hvert vandamálið er: Vald sem kýs að smána borgaranna í stað þess að svara málefnalega. Fullveldi þjóðarinnar er ekki ‘aumkunarvert uppátæki.“