Eigum við núna að fara að sjá rógburðardrif einokunar RÚV gegn andstæðingum ríkisstjórnarinnar, alla vega þeirra sem kusu nei gegn blekkingu ríkisstjórnarinnar um að fá já til að gera aðildarsamning um inngöngu Íslands í ESB? Greinilega er stjórnendum RÚV meinilla við þá sem hafa haft sig frammi í umræðunni eins og til dæmis Hannes H. Gissurarson en útvarpið ásakar Hannes um að hafa styrkt sigurgöngu Brexit í Bretlandi með um 7 milljónir króna á árunum 2014-2017. Lítur það næstum því út eins og það sé Hannesi að þakka – eða kenna um – að Bretar völdu að ganga úr Evrópusambandinu.
Eru engin takmörk fyrir ósvífni og hlutdrægni ríkismiðilsins gagnvart þeim sem hafa aðrar skoðanir en en ríkisstjórnin boðar? Ef eitthvað er, þá mega svo kallaðir blaðamenn ríkisstofnunarinnar skammast sín niður í tær fyrir að draga heiðarlega blaðamennsku í svaðið til að hefna ófara ríkisstjórnarinnar og reyna að sundra þjóðinni enn frekar en orðið er með hálfglæringum og dylgjum. Af hverju gerir RÚV ekki þjóðinni grein fyrir öllum þeim hundruðum milljónum króna sem stofnunin hefur fengið í styrki frá ESB bæði beint og óbeint? Samanborið við umræddar 7 milljónir ætti nú RÚV að halda sér á mottunni.
Hannes Hólmsteinn var í Bítinu hjá Bylgjunni í morgun eins og Vísir greinir frá og þar má einnig hlusta á þáttinn. Hannes sagði þar meðal annars:
„Ég get nú ekki annað en hlegið að því, að þeir birtu frétt um það, án þess að tala við mig að erlend heimasíða sem heitir Follow the money hefði komist að því að ég hefði veitt stórfé í Brexit baráttuna í Bretlandi. Þetta er allt úr lausu lofti gripið og alveg fráleitt. Þetta var bara birt athugasemdalaust.
Þegar þú lest hinsvegar erlendu heimasíðuna þá kemur nú eiginlega ekkert fram um þetta. Það kemur bara fram að ég hafði milligöngu um það að útvega styrki til ákveðinnar stofnunar, sem hét Institute of Direct Democracy of Europe, IDDE frá íslenskum fyrirtækjum. Og síðan er bara sagt að þessi stofnun hafi líka tekið þátt í Brexit.“
Samkvæmt Vísi fullyrðir Hannes að sannleikurinn sé hins vegar sá að hann hafi útvegað styrki í ákveðið verkefni sem hafi verið fólgið í því að gefa út átta bækur undir merkjum Evrópu fórnarlambanna. Verkefnið sé fólgið í því að minnast fórnarlamba alræðisstefnunnar í Evrópu og hafi meðal annars gefið út bók sem hafi innihaldið greinar um kommúnisma eftir Bertrand Russell og bókina Konur í þrælakistum Stalíns eftir Elinor Lipper og Aino Kuusinen, ásamt fleiri bókum.
„Við endurútgáfum þessar bækur með formálum eftir mig og í þetta fóru þessir peningar og þess er vandlega getið í bókunum að þetta hafi verið gert í samstarfi við IDDE og Brexit kom ekkert nálægt þessu, það er ekkert sem tengir þetta framtak við Brexit. Og sannleikurinn er sá, af því ég hef rekið nokkrar hugveitur með Ragnari og einn og svo framvegis, ég hef útvegið fjármagn frá íslenskum fyrirtækjum, það eru nefnd nokkur í útvarpsfréttinni eins og Brim og Hval og Ísfélaginu og fleirum og Almenna bókafélaginu og Almenna bókafélagið var sá sem gaf þetta út. Þannig það var bara ekkert athugavert við þetta og tengdist ekkert Brexit en fyrirsagnirnar voru um það að íslensk útgerðarfyrirtæki hefðu stutt Brexit baráttuna, alveg fráleitt, úr lausu lofti gripið.
Þannig það kom enginn beinn fjárstuðningur frá þér í baráttuna í Brexit?
Nei, alls ekki. Enda er þetta þeirra barátta, mér myndi ekki detta í hug að taka þátt í því að safna peningum á Íslandi fyrir baráttu í Bretlandi, fyrir úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Það kemur okkur ekkert við.“
RÚV er rökþrota eins og ríkisstjórnin og á ekkert annað eftir í farangrinum en að þyrla upp ryki yfir stjórnarandstæðinga til að rugla fólk í ríminu. Fólk gæti sem sagt bæði krafist þess að ríkisstjórnin fari frá og að efnt verði til nýrra kosninga og að RÚV leggi fram reikningana og geri grein fyrir öllum peningum frá Evrópusambandinu.
