Allir stóru samfélagsmiðlarnir nema X vinna með ritskoðun byggða á „gildum“ Evrópusambandsins.
Morgunblaðið uppljóstrar í dag um að Meta sem á Facebook heimilar ekki auglýsingar á nýrri bók Ólafs Ragnars Grímssonar. Bókin ber heitið Vegferð um veröldina og fjallar um kafla í ævi Ólafs Ragnars. Þar segir hann meðal annars frá námsárum sínum í Bretlandi, alþjóðlegu stjórnmálastarfi, samskiptum við erlenda þjóðarleiðtoga og leiðinni að forsetakosningunum árið 1996.
Samkvæmt Jóni Heiðari Gunnarssyni, markaðsstjóra Forlagsins, þá hefur Meta gefið þær skýringar að bókin sé „of pólitísk“. Þrátt fyrir athugasemdir um matið hefur Meta ekki breytt afstöðu sinni. Jón segir:
„Við erum líklega að berjast við einhver algrím og botta sem flagga þessari bók sem of pólitískri. Við höfum tvívegis haft samband við Meta og gert athugasemdir og vitum ekki hvort það sé innihaldið eða kápan sem leiðir til þessa, en Meta er ekki að gefa sig. Við munum þó halda áfram að reyna.“
Morgunblaðið upplýsir að Meta hafi bannað í október 2025 greiddar auglýsingar um stjórnmál, kosningar og samfélagsmál á Facebook og Instagram innan Evrópusambandsins vegna nýrra evrópskra reglna um gagnsæi stjórnmálaauglýsinga. Bannið gildir ekki á Íslandi, þar sem slíkar auglýsingar eru áfram heimilar að uppfylltum skilyrðum um auðkenningu auglýsenda og gagnsæi. að sögn Mbl. Eins og sést þá fylgir Meta ekki einu sinni þeirri reglu og hegðar sér eins og að Ísland sé hluti af ESB.
Allir stóru samfélagsmiðlarnir nema X með ritskoðunarsamninga við ESB til að komast hjá himinháum sektum
Margir þekkja til deilna ESB og X. Elon Musk hafnaði tilboði ESB um leynilegan samning, þar sem honum var boðið að sleppa við 120 milljón evra sekt ef hann aðlagaði algóriðma X að ritskoðunarkröfum sambandsins. Hann neitaði að semja um ritskoðun á X og ásakaði Evrópusambandið um að reisa stafrænt járntjald í Evrópu. Aðrir tæknirisar eins og Facebook, Google og Apple réðu til sín starfsfólk til að tryggja að farið yrði að reglum Brussel og aðlöguðu sig að kröfum ESB. Þessir aðilar sleppa við sektir af hálfu ESB og þá kemur þetta svona hranalega furðulega út svo eftir verður tekið, að fyrrverandi forseti Íslands fær ekki að auglýsa bók um hluta lífs síns.
Elon Musk fór aðra leið og kærði sekt ESB sem brot á lögum um hlutleysi sem stofnanir ESB þykjast fylgja. Hann benti á það sem sérfræðingar hafa rætt í mörg ár að ESB gæti ekki verið kærandi, saksóknari og dómari í í eigin kærumáli. ESB setur reglurnar, hefur rannsóknir, aflar sönnunargagna, ákveður hvort sönnunargögnin séu nægjanleg og leggur á sektir. Það er enginn sjálfstæður saksóknari. Alþjóðlegu lögfræðisamtökin Alliance Defending Freedom International, sem berjast meðal annars fyrir tjáningarfrelsi, hélt því fram fyrir dómi að þessi samþjöppun valds – þar sem sami aðili væri eftirlitsaðili, saksóknari og dómari – bryti gegn grundvallarreglum um réttláta málsmeðferð. Þjóðólfur skrifaði áður um málaferli Musks gegn ESB „Málfrelsið í húfi – Elon Musk dregur Evrópusambandið fyrir rétt“ sjá linka að neðan.
Til hamingju Ólafur!
Að komast á svarta lista ESB sem talsmaður gegn aðild að Evrópusambandinu er til marks um þann árangur sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur náð og hversu mikil áhrif hann hefur. ESB þolir ekki einstaklinga sem koma með rök sem heyrast gegn sér og þeir lenda á svarta listanum. Hugsanlega dregur Meta auglýsingabannið á bók Ólafs til baka, svona hugsanlega þegar jólasölunni lýkur. Hugsanlega ekki. En það skiptir í sjálfu sér engu máli fyrir uppljóstrun á ritskoðunarháttum tæknirisanna fyrir ESB og fasísks eðlis sambandsins. Afleiðingar verða enn frekari auglýsing á bókinni og afstöðu fyrrverandi forsetans okkar sem stóð sig svo vel í Icesave og núna gegn aðildarvegferð valkyrjanna. Sést líka á þeim skít sem utanríkisráðherrann eys yfir Ólaf Ragnar Grímsson og hver veit nema að valkyrjurnar hafi lagt til við ESB að Ólafur yrði settur á bannlistann. Annað eins gerist þessa dagana samanber kæru fyrrverandi formanns Samfylkingarinnar, Árna Páls Árnasonar, gegn Íslandi fyrir brot á EES-samningnum.
Þjóðólfur óskar Ólafi Ragnari Grímssyni til hamingju með athyglina á nýrri bók sinni og hvetur alla til að næla sér í eintak.
