Er lausn á vanda Valkyrjuflokkanna sérstakt meðferðarheimili fyrir sjúka stjórnmálamenn?

Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokk fólksins kom út úr skápnum í gær og kjökraði afsökunarbeiðni fyrir að hafa pantað kjarnorkustríð í Evrópu hjá Emmanuel Macron Frakklandsforseta. Sérstaklega gól hann í eyru flokkssystkina sinna um að það hæfði ekki flokknum að hvetja til gjöreyðingarstríðs og hann hefði alls ekki verið að tala í nafni flokksins heldur bara að viðra eigin skoðun. Greinilega viðrar hann þann möguleika að flokkurinn víki honum úr starfi fyrir vikið. Heimir segir í yfirlýsingu sem fjölmiðlar birtu í gær:

„Vegna umfjöllunar um athugasemd sem ég skrifaði á samfélagsmiðlinn X í gær vil ég biðjast afsökunar á orðalagi mínu, sér í lagi vísun til kjarnorkuvopna. Þau orð eiga sér engar málsbætur og hefðu betur verið ósögð og hef ég nú eytt færslunni.“

Ekkert heyrist frá flokksforystunni. Inga Sæland hefur ekki tekið neinn blús í hljóðnemann á að gereyðingarsinninn verði látinn fara úr flokknum fyrir geðveikisleg skrif sín á samfélagsreikningi erlends þjóðhöfðingja.

Er það af ótta við valdboð utanríkisráðherrans sem gæti móðgast yfir því að systurflokkurinn ávarpi erlendan þjóðhöfðingja í stað utanríkisráðherrans? Ekki vegna gereyðingarstríðsins, þar eru flokkarnir eflaust sammála. Kannski Þorgerður kalli Ingu Sæland inn á teppið og skammi hana fyrir að hafa ekki betur stjórn á framagosum sínum sem ryðjast inn á svið utanríkisráðherrans?

En þingflokkur Viðreisnar er í rusli eftir útgöngu Jóns Gnarrs og innri fíklavandamál. Þessir tveir stjórnmálaflokkar, Viðreisn og Flokkur fólksins, hafa að undanförnu gefið tilefni til þeirrar hugmyndar hvort að lausn á vanda stjórnmálamanna nútímans gæti verið sérstakt meðferðarheimili þeirra sem glíma við geðræn -og fíknivandamál. Slík úrlausn hentaði eflaust og endalaust hægt að fara í veikindafrí frá Alþingi á fullum launum.

En við nánari eftirgrennslan verður sú hugmynd ekki betri en að reyna að tæma baðkarið með opnum krana með því að ausa vatninu úr því með teskeið. Málið er nefnilega að enginn ætti að geta fengið stöðu innan stjórnmálaflokks sem á við geðræn vandamál eða fíkniefnavandamál að stríða.

Gústaf Níelsson sagnfræðingur sem hefur verið í viðtölum hjá Þjóðólfi hefur stundum minnst á að rúmið er eins vel um búið og maður skildi við það sjálfur um morguninn. Ef Alþingi er spegill þjóðarinnar, þá fær þjóðin þá stjórnmálamenn sem hún kýs. Vandinn er að sumir stjórnmálamenn eru slóttugri en aðrir og færir um að villa á sér heimildir. Lofa einu fyrir kosningar og svíkja svo þegar í valdastólana eru komnir.

Það er sjálfsögð krafa á stjórnmálaflokka að þeir ráði ekki til sín óreiðumenn, svindlara, dópista eða ofdrykkjumenn. Æsingur valkyrjuflokkanna til að komast í völdin og peningana er því miður svo mikill að öllu venjulegu siðferði er fargað fyrir persónulegum frama og fjárhagslegum hagsmunum stjórnmálamannanna. Þar er niðurlæging stjórnarskrárinnar fremst í flokki og þar með hagsmunir þjóðarinnar, kjósenda.

Þjóðinni verður það dýrkeypt að hleypa svona fólki til valda. Rétt tókst að bjarga þjóðinni frá hengingu í ESB-ólinni í sumar. Enn er reynt á ný að fjötra þjóðina með frumvarpi um bókun 35. Engu er líkar en að valkyrjurnar vilji sjá borgarastyrjöld á Austurvelli í þeirri von að ESB-fáninn verði að lokum hengdur á Alþingishúsið. Og í framhaldinu á Bessastaði.

Ekkert meðferðarheimili getur læknað slíkan sjúkdóm.

Þjóðin þarf að skikka stjórnmálaflokkana til að setja inngönguskilyrði fyrir innanflokksembættum. Giltu slík skilyrði í dag þyrfti ekki að ræða málið. Heimir Már Pétursson hefði umsvifalaust verið rekinn fyrir gereyðingaruppátæki sitt og Inga Sæland væri búin að lýsa því yfir að flokkurinn vildi frið í stað kjarnorkustríðs framkvæmdastjórans. Fáum við nokkru sinni sjá það gerast?