Er Evrópa að gefast upp?

Allt frá því að afnema jólahefðir til byggingar moskna fyrir erlent fé stuðla stofnanir Evrópu að íslamsvæðingu, jafnvel þótt enginn biðji þær um það.


Sebastian Kruis

Alvaro Sebastian Kruis er hollenskur stjórnmálamaður sem hefur setið á Evrópuþinginu frá júlí 2024 fyrir hönd Partij voor de Vrijheid (PVV), Frelsisflokksins. Á Evrópuþinginu tilheyrir hann þingflokknum Föðurlandsvinum Evrópu (Patriots for Europe). Hann skrifaði þessa grein nýlega um íslamsvæðingu Evrópu.


Ég var sextán ára þegar ég gekk í Frelsisflokk Geerts Wilders. Meginástæðan var sú að ég vildi berjast gegn íslamsvæðingu Hollands.

Um það leyti ákvað framhaldsskólinn minn að hætta að setja upp hið árlega jólatré í aðalsalnum, þar sem það var talið móðga „fólk annarrar trúar“. Áður hafði öllu kjöti í mötuneytinu þegar verið skipt út fyrir halal-kjöt.

Það sláandi við þessar breytingar var að enginn múslimi hafði beðið um þær. Þetta var ákvörðun skólastjórnarinnar, hóps hvítra trúða sem vildu sýna eigin dyggð. Ég kalla þetta sjálfsíslamsvæðingu og hef síðan rekist á hana í ýmsum myndum og á mörgum stöðum.

Merki um undirgefni

Á árunum 2018 til 2024 naut ég þess heiðurs að vera fulltrúi kjósenda minna í borgarstjórn Haag. Sem borgarfulltrúi vakti ég máls á hættunni sem stafaði af As-Soennah-moskunni.

Þetta er salafísk moska sem var gróðrarstía hryðjuverka og helsta uppspretta vígamanna sem fóru frá Hollandi til Sýrlands. Hún fékk styrk frá sveitarfélaginu úr vösum hollenskra skattgreiðenda á sama tíma og hún hvatti opinberlega til limlestingar á kynfærum stúlkna. Þótt styrkurinn væri felldur niður í kjölfar tillögu flokks míns stóðu moskan og vandamálin sem henni fylgdu eftir.

Borgarstjóri Amsterdam sagði eitt sinn að hún héldi sig vísvitandi frá salafískum moskum, þar sem heimsóknir til þeirra myndu senda hófsömum múslimum röng skilaboð. Borgarstjóri Haag var hins vegar einn af eftirlætisgestum moskunnar og drakk þar te til að „halda sambandi við alla hópa samfélagsins“.

Við lok ramadan bauð lögreglan á staðnum þúsundum róttækra salafista ókeypis drykki á meðan þeir lokuðu götum og brutu umferðarreglur í kringum moskuna. Þetta sendi alröng skilaboð: merki um uppgjöf lögreglunnar og undirgefni við róttækt íslam.

Erlendar stjórnstöðvar í Evrópu

Nýlega ræddi ég við Visegrád24 í Strassborg, fyrir framan stærstu mosku Evrópu, sem Katar og Tyrkland hafa fjármagnað. Þeir sem borga ráða. Það þýðir að meira af róttæku íslam er þröngvað inn í samfélag okkar í gegnum þessa risavöxnu höll hatursins. Það þýðir að fleiri eru sannfærðir um að fyrirlíta allt sem við stöndum fyrir á hinum frjálsu Vesturlöndum.

Mörg ríki víða um heim hafa eftirlit með moskum einmitt af þessari ástæðu. Ég skil ekki hvers vegna við gefum slíkum ríkjum frelsi til að eitra samfélög okkar með hatri sínu og leyfum þeim í reynd að koma á fót erlendum stjórnstöðvum í hjarta álfunnar okkar.

Jafnvel ríki á borð við Jórdaníu og Túnis setja moskum, ímömum þeirra og prédikunum strangar skorður til að koma í veg fyrir útbreiðslu róttæks íslams og hreyfinga á borð við salafisma. Í Evrópu hafa þau hins vegar frjálsar hendur til að gera hvað sem þau vilja og leiðtogar okkar koma enn við til að drekka með þeim te.

Afleiðingar sjálfseyðandi samkenndar

Afleiðing þessarar stefnu sjálfseyðandi samkenndar er sú að ganga um hvaða stórborg sem er í Vestur-Evrópu í dag er allt önnur upplifun en fyrir tuttugu árum. Þéttbýli er hulið þykku teppi íslamsvæðingar sem hefur neikvæð áhrif á borgara okkar í daglegu lífi.

Konur verða fyrir áreitni og nauðgunum á götum okkar af hálfu múslimskra karla sem líta á þær sem óæðri verur. Samkynhneigðir verða í síauknum mæli fyrir ofbeldi og óttast að ganga hönd í hönd um göturnar. Hópar múslimskra jafnaldra ráðast að börnum í skólum, neyða þau til niðurlægjandi athafna og berja þau. Á hverjum degi eru ótal dæmi um að þetta gerist fyrir augum okkar. Framtíðin verður ekki bjartari ef við neitum að bregðast við.

Við verðum að endurheimta Evrópu

Í Evrópu höfum við rætt íslamsvæðingu og hörmuleg áhrif hennar á frelsi okkar í áratugi, en samt hefur svo lítið breyst.

Nú vinnur mannfjöldaþróunin gegn okkur. Ef við bregðumst ekki við mun Evrópa einfaldlega breytast í eitt stórt íslamskt ríki, ekki aðeins vegna fjöldainnflytjenda heldur einnig vegna þess að fæðingartíðni meðal múslima er að jafnaði hærri en meðal annarra.

Þess vegna eru fjöldabrottflutningar innflytjenda til upprunalanda sinna eini kosturinn sem eftir er til að bjarga álfunni okkar. Það er engin önnur leið til að endurheimta Evrópu.

Við megum aldrei beygja okkur. Við verðum alltaf að standa fast á okkar.

Þessi grein eftir Sebastian Kruis birtist fyrst í Visegrad24