
Helga Dögg Sverrisdóttir, kennari og sjúkraliði, skrifar um samband Akureyrarbæjar við Samtökin 78 varðandi skipun samtakanna að taka mál húsmæðra sem fengið hafa inni á Amtsbókasafninu „föstum tökum.“ Er það vegna skoðana einna kvennanna, fjögurra barna móður, sem er ósammála skilgreiningu transsamtakanna að kynin séu fleiri en tvö, maður og kona.
Helga Dögg Sverrisdóttir hefur sjálf lent í hatursvél S78, þegar hún vakti athygli á barnaverndarlögum um heilsu og þroska barna og ræddi m.a. að hormónablokkandi lyf sem bönnuð eru á mörgum stöðum í dag og vísaði í dóm Mannréttindadómstólsins sem líkt og Hæstiréttir Bretlands segir að þú ert það kyn sem þú fæddist til.
Þjóðólfur náði tali af Helgu Dögg sem veitti góðfúslega samþykki til birtingarinnar.
Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Það var undarleg frásögn í Þjóðólfi fyrir skömmu. Svipuð umfjöllun var á Vísi um sama mál. Starfsmaður Akureyrarbæjar virðist hlaupatík fyrir trans Samtökin 78.
Hann gerist hlaupatík af því íbúi á Akureyri, sem hvorki aðhyllist kynjatöltið sem trans Samtökin boða eða heillast af málflutningi þeirra, sinnir sjálfboðnu starfi í þágu kvenna í stofnun sem bærinn á. Trans Samtökin 78 senda póst til Dagnýjar Davíðsdóttur, sem gerist hlaupatík fyrir samtökin. Dagný átti að taka málið föstum tökum. Leynt og ljóst mátti greina að úthýsa ætti konunum.
Um hvað fjallar málið
Einn aðstandandi sjálfboðaliðasamtaka, sem samanstendur af heimavinnandi húsmæðrum, hefur tjáð sig á eigin snjáldursíðu um kvengervla, karla sem skilgreina sig sem konur. Hún benti á að karlar geti ekki gefið brjóst, einhver heilvita maður ósammála því? Forsvarsmaður trans Samtakanna 78 telur þau og önnur ummæli óviðeigandi og því eigi að blanda saman við sjálfboðna starfið.
Akureyrarbær á að grípa til viðeigandi ráðstafana segir í pósti til Dagnýjar. Síðan hvenær ráða trans Samtökin 78 bæjarfélaginu?
Það vita allir að trans-kona (kvengervill) er karlmaður, annars kallaði hann sig ekki sjálfur trans-kona. Og ekkert rangt að segja sannleikann. Hæstiréttur Bretlands dæmi fyrir skömmu að umræddir karlmenn geta ekki verið konur í lagalegum skilningi. Þessu eiga trans Samtökin 78 erfitt með að kyngja.
Verra er þegar hlaupatík samtakanna fer á stúfanna sem starfsmaður bæjarfélagsins. Tekur sér vald sem hún hefur ekki.
Dagný Davíðsdóttir segir það ekki í anda og stefnu sveitarfélagsins að segja sannleikann. Þar hitti hún naglann á höfuðið því í skólakerfinu á Akureyri er viðurkennt að ljúga megi að börnum þegar kemur að kyni og kynóreiðu.
Stangast á við stefnu bæjarins að segja sannleikann um kynjaóreiðuna sem menn hafa fundið upp og margir skólastarfsmenn þar á bæ lepja upp.
Sett ofan í við skólastjóra
Ekki er ýkja langt síðan að Eva Hauksdóttir lögmaður skrifaði grein vegna viðbragða skólastjóra á Akureyri sem hafði óviðeigandi afskipti af skoðunum og skrifum starfsmanns. Sú hegðun var komin á eineltisstig, enda margoft gerð athugasemd við persónuleg skrif starfsmannsins. Alveg ljóst, tjáningarfrelsið á að gefa mönnum leyfi til að hafa ólíkar skoðanir. Annað er óeðlilegt í lýðræðissamfélagi.
Eins má minnast á kennara í sama skóla sem vildi láta reka kennara úr starfi fyrir skoðanir hans. Heiða Björg Guðjónsdóttir hlýtur af þeirri ástæðu að aðhyllist málflutning og lífsskoðun trans Samtakanna 78. Kannski er þar önnur hlaupatík…aldrei að vita! Eða eins og þessi bloggari skrifar, Stasi 78.
Hvað er að á Akureyri þegar starfsmenn bæjarins telja það nauðsynlegt að vera hlaupatíkur fyrir trans samtök sem boða hugmyndafræði sem stenst ekki sannleik, raunveruleika og fræðileg vinnubrögð? Svari hver fyrir sig.
Bæjarstjóri þarf að bregðast við
Ljóst er að Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri þarf að kenna starfsmönnum bæjarins út á hvað tjáningarfrelsið gengur. Hvar mörk þeirra liggja. Starfsmenn bæjarins, eins og Dagný Davíðsdóttir og Hólmkell Hreinsson, eiga ekki að taka það upp á sitt einsdæmi að ákveða hvað sé ,,hatursorðræða“ og hvað ekki. Og enn síður að hlaupa eftir duttlungum trans samtaka.
Mönnum er frjálst að gangrýna málflutning annarra á opinberum vettvangi og hvað þá um mjög umdeild samfélagsmál eins og trans málefnið er. Málaflokkur sem getur skaðað börn.
Því skal líka haldið til haga að þeir sem hafa aðra lífsskoðun en trans Samtökin 78 eiga sama rétt og þeir sem aðhyllast málflutning þeirra og lífsskoðun. Sama rétt til afnota af húsnæði sem tilheyrir hinu opinbera.
Já, Dagný Davíðsdóttir er hlaupatík trans Samtakanna 78 miðað við frásagnir af málinu og Hólmkell líka.