Enn á flótta eftir að hafa ekið niður þátttakendur í Pride-göngu í Berlín

Abdul Ballout (á innfeldri mynd) er enn á flótta eftir að hafa ekið sendibifreið inn í Pride-hátíðahöld í Berlín á laugardagskvöld.

Maðurinn varð einni konu að bana og særði 16 aðra.

Lögreglan kannar núna fortíð hans, möguleg tengsl hans við múslimsk samtök og hvers vegna Ballout, sem var látinn laus úr unglingafangelsi í maí, virðist ekki hafa vakið athygli öryggisyfirvalda fyrr. Frá þessu greinir Bild.

Lögreglan hefur birt mynd af Abdul og lýsir honum sem grönnum, um 190 sentímetra háum með svart hár. Hann var sagður klæddur hettupeysu og hvítum buxum.

„Ef þið verðið vör við þennan mann skuluð þið undir engum kringumstæðum nálgast hann eða hafa beint samband við hann. Hann gæti verið vopnaður og hættulegur,“ segir lögreglan í tilkynningu.

Lögreglan biður vitni jafnframt um að miðla öllum upplýsingum sem gætu skipt máli fyrir rannsóknina, sem og ljósmyndum eða myndskeiðum sem þau kunna að hafa tekið í tengslum við atvikið.