Eldur Smári Kristinsson, oddviti Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi við síðustu Alþingiskosningar og formaður Samtakanna 22, hefur höfðað skaðabótamál á hendur Ríkisútvarpinu og Bergsteini Sigurðssyni, fréttamanni vegna ummæla Bergsteins um Eld Smára í svokölluðum fréttaþætti stofnunarinnar fyrir alþingiskosningarnar 2024.
Í inngangi að umræðu og spurningum þáttastjórnandans Bergsteins sagði hann Eld Smára hafa verið “fjarlægðan af lögreglu úr grunnskóla,” og “sakað þá sem berjast fyrir réttindum transfólks um barnaníð,” og “þrástaglast um að… ‘nafngreind íslensk baráttukona’ sé karl.”
Þátturinn var sýndur 26. nóvember, 2024 og næsta dag var RÚV send krafa um leiðréttingu og afsökunarbeiðni sem sneri að þeirri fullyrðingu Bergsteins að Eldur hefði verið fjarlægður af lögreglu úr skólabyggingu annars vegar og hins vegar að hann hefði haft í frammi óviðurkvæmileg ummæli á opinberum vettvangi “um kynfæri tilgreinds einstaklings.”
RÚV hafnaði kröfu Elds um að fá að koma fram í miðlinum til að bera af sér ásakanirnar, en birti leiðréttingu að hluta í neðanmálsgrein á vef stofnunarinnar:
“Í viðtalinu var sagt að Eldur Smári Kristinsson… hefði mætt óboðinn í grunnskóla og verið fjarlægður af lögreglu. Hið rétta er að skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar tilkynnti málið til lögreglu.”
Í málsásstæðum stefnanda Elds Smára er bent á að háttsemi þáttastjórnandans og RÚV brjóti gegn lögum nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið og starfsmenn þess, en lögin kveða m.a. á um. hvernig stofnunin og starfsmenn skuli haga störfum sínum:

RÚV hafi ennfremur brugðist lýðræðislegu hlutverki sínu og skyldum í aðdraganda kosninganna sem helsti frétta- og upplýsingamiðill landsins.
Eldur Smári segir stefndu hafa brotið gegn “frelsi, friði æru og persónu stefnanda og valdið honum miska” og gerir kröfu um 3.500.000 í miskabætur.
Málið verður þingfest 11. mars nk.