El Salvador, sem eitt sinn var það land heims þar sem morðtíðni var hæst, er nú opinberlega talið öruggara fyrir bandaríska ferðamenn en Svíþjóð, samkvæmt gildandi ferðaráðleggingum bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Bandarísk stjórnvöld flokka El Salvador á áhættustigi 1, „Gætið hefðbundinnar varúðar“, sem er lægsta mögulega áhættustigið. Svíþjóð er hins vegar á áhættustigi 2, „Gætið aukinnar varúðar“, vegna áhyggna af hryðjuverkum.
Nayib Bukele, forseti El Salvador, hefur tekið hart á skipulagðri glæpastarfsemi og dregið verulega úr tíðni manndrápa, sem var um 1,3 á hverja 100.000 íbúa árið 2025.
Þrátt fyrir þessa góðu reynslu frá El Salvador að ráða niðurlögum glæpahópa, fer Svíþjóð eigin leið sem veldur Svíum meiri þjáningum.
