Eistneskur ráðherra: Evrópa er í stríði við Rússland

Evrópa er þegar í stríði við Rússland. Þetta segir Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands, í viðtali við Ekot, fréttastofu sænska ríkisútvarpsins.

„Þetta er ekki hefðbundið stríð, en þetta er stríð,“ segir hann.

Tsahkna vísar til þess sem hann lýsir sem hertum skemmdarverkum í blendingshernaði gegn nokkrum Evrópuríkjum undanfarnar vikur. Að hans mati ætti að kalla þetta ríkisstudd hryðjuverk.

Markmið rússnesku ögrananna sé að vekja ótta og sundrungu á Vesturlöndum, segir hann. Evrópa ætti að bregðast við af meiri krafti og hraðar, en skortur á samstöðu valdi því að viðbrögðin komi alltaf of seint.

Hann telur hins vegar ekki að rússnesk innrás í Eistland sé yfirvofandi.