Eignaupptaka ríkisins er skær sósíalismi

Bjartsýnin hrynur samkvæmt Gallup. Skiljanlega. Ríkisstjórnin boðar eignaupptöku í aðalatvinnuvegum þjóðarinnar sem Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðismanna, kallar réttilega stjórnlyndi og sósíalisma. 

Í sjávarútveginum er framtíðin dökk. 61% telja horfur verri eftir sex mánuði en í dag. Enginn ætlar að fjölga starfsmönnum hvorki mikið eða nokkuð. Flestir reyna að standa í stað, 33% ætla að fækka nokkuð og 6% jafnvel mikið. Það er sama hvert er litið, fyrirtæki og starfsmenn sem að þessari arðbæru grein standa, sýna rauða spjaldið við skattahækkun ríkisstjórnarinnar. 

Forystumenn samtaka atvinnulífsins, sveitastjórna m.fl. keppast um að leggja staðreyndir um neikvæð áhrif skattahækkana ríkisstjórnarinnar fram á borðið en ríkisstjórnin leggur ekki við hlustir. Segir allt annað en eigin skattahækkanir vera illgirni, upplýsingaóreiðu, hatursorðræðu eða misskilning. Skattstofan kemur með tölur sem ríkisstjórnin ræðir ekki um og heldur sjálf inni gögnum sem hún fullyrðir að sé vandlegur undirbúningur leiðréttingarinnar. 

Niðurstaðan verður nákvæmlega sú sem starfsmenn sjávarútvegs vara við: Fækkun fyrirtækja í greininni, landsbyggð sem leggst í eyði, flótti fiskvinnslufyrirtækja erlendis, færri atvinnutækifæri og minni fjárfestingar. Íslenskur sjávarútvegur hefur reynst öflugasta burðarás efnahagslegrar velferðar á Íslandi með margföld laun til sjómanna miðað við lönd á meginlandinu. Af hverju skyldu duglegir fyrirtækjarekendur finna til meiri félagslegrar samkenndar þegar þeim er refsað fyrir dugnaðinn?

Landsbyggðin borgar segja þeir Ragnar Sigurðsson og Heimir Örn Árnason, formenn bæjarráðs Fjarðarbyggðar og Akureyrarbæjar, í Morgunblaði dagsins. Benda þeir með staðreyndum á að 75% af nýsköttun ríkisins á greininni lendir á tveimur kjördæmum, Suðurkjördæmi og Norðausturkjördæmi. Norðausturkjördæmi þarf eitt að standa undir tæplega helmingi allrar gjaldtöku ríkisins. 

Þessa sturluðu árás veruleikafirrtrar ríkisstjórnar verður þjóðin að stöðva ef hún á að koma í veg fyrir eyðileggingu þess atvinnuvegar sem verið hefur megin grundvöllur velferðar almennings. Hér er um aðgerð akademískra froðufellandi sósíalista að ræða sem með einu hugmyndafræðilegu pennastriki ætla að gera undirstöðuatvinnugrein landsmanna óhaldbæra.

Landsmenn verða að taka sig saman og verja gildi sjávarútvegsins fyrir Ísland og berjast gegn sósíalískri eignaupptöku ríkisstjórnarinnar og öfundsýki akademíunnar sem aldrei hefur sjálf dýft hendi í blautan sjó. Krefjast ber nýrra þingkosninga sem allra fyrst til að koma í veg fyrir skemmdarverk ríkisstjórnarflokkana sem lofuðu öllu fögru fyrir kosningar og reyna að koma á sósíalísku stjórnkerfi þegar í valdastólana er komið.

Hefði þjóðin vitað af þessu fyrir fram hefðu sósíalistaflokkar nútímans, Viðreisn og Samfylking, aldrei fengið umboðið samtímis og þjóðin fleygði Vinstri Grænum og Pírötum út af þingi.

Fara efst á síðu