Í viðtali við Jón Magnússon hrl. sem birt verður í hlaðvarpi Þjóðólfs síðar í dag er rætt um hvað það er sem er í þessum margumrædda pakka. Málfundafélagið Frelsi og fullveldi samþykkti nýverið ályktun vegna ESB-kosninganna á morgun. Í lokaorðum ályktunarinnar segir:
„Samþykkt um að hefja aðildarviðræður er ekki hlutlaus könnun á því hvað kunni að vera i boði. Hún markar pólitíska stefnu um aðild og bindur stjórnsýslu landsins við verkefnið um ófyrirséðan tíma.
Sjálfstæði þjóðarinnar er dýrmætasta eign hennar og grundvöllur frelsis hennar og fullveldis. Stjórnarskráin og óskoraður réttur þjóðarinnar til yfirráða yfir auðlindum lands og sjávar skulu aldrei vera umsemjanleg.“
Allir sem hafa kynnt sér málið skilja að Ísland er að sækja um inngöngu í ESB. Ríki sækir ekki um aðild ESB til að fá kennslu í Lissabonsáttmálanum. Stjórnskipunarlög ESB liggja fyrir og engu verður þar breytt enn sem komið er nema með samþykki allra 27 ríkja sambandsins.
Samningurinn sem ríkisstjórnin talar um að séu óþekktar staðreyndir sem verður að segja já til að sjá er frágenginn aðildarsamningur Íslands að ESB tilbúinn til samþykkis Alþingis og undirskriftar forsetans. Mikið er í húfi fyrir ESB og íslensk handbendi þeirra að hraða málinu á meðan núverandi ríkisstjórn lafir við völd svo hægt verði að samþykkja aðildarsamning á núverandi kjörtímabili.
Þegar fyrri umsókn var til umræðu á Alþingi, vissi Þorgerður að fullveldið laskaðist verulega við inngöngu í ESB. Til eru afrit af ræðum hennar til verndar fullveldis Íslands. Núna hefur henni snúist hugur og hefur breytt stjórnarráði Íslands í hreiður útrásarvalkyrja sem vilja selja Ísland hæstbjóðanda.
Brellan til að fá landsmenn fasta í gildru ESB er að segja ósatt frá um hvað atkvæðagreiðslan snýst. Aftur og aftur endurtaka valkyrjurnar sama söng. „Engin áhætta tekin“, „Bara verið að kanna, hversu góðan samning Ísland getur fengið án nokkurra skuldbindinga“ og svo framvegis.
Þetta er uppspuni frá rótum, því aðildarviðræður eru aðlögunarviðræður, þannig að þegar samningur liggur fyrir, þá er það aðildarsamningur Íslands að ESB. Áhættan sem landsmenn taka með Já er að Ísland sitji fast í neti ESB og ekki verði aftur snúið.
Vegna þessarar blindu á stjórnlagagrundvelli ESB sem skýrður er í Lissabonsáttmálanum lítur dæmið því út fyrir að farið sé í þennan leiðangur svo núverandi ráðamenn geti fengið það inn í hausinn sem kom í ljós þegar í hinni misheppnuðu umsókn árið 2009. Samningamenn Samfylkingarinnar og vinstri grænna snéru sneyptir heim þegar þeim var ljóst að ekki yrði samið vegna ákvæða Lissabonsáttmálans um einhliða yfirráð ESB yfir lífríki og lögsögu sjávar aðildarríkjanna.
Þess vegna eru engin markmið sett fram núna eins og gert var þá af hálfu Alþingis og Jón Bjarnason studdist við til að glopra ekki yfirráðum Íslands á landhelginni til Brussel. Ef niðurstaðan verður Nei á morgun þá má setja allan kostnaðinn við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu á útgjaldalið ríkisfjárhirðis um námskeið fyrir stjórnendur Íslands í Lissabonsáttmálanum.
Sennilegast það dýrasta námskeið sem nokkrir ráðherrar hafa nokkru sinni farið í í Íslandssögunni.
