„Drepnir eftir pöntun“ – óhugnanlegar ásakanir um líffæratökur í Kína

Fangar eru drepnir eftir pöntun í Kína svo hægt sé að taka úr þeim líffæri fyrir sjúklinga sem þurfa á ígræðslu að halda. Þetta er megin viðfangsefni bókarinnar Killed to Order eftir blaðamanninn Jan Jekielek, sem segir umfangsmikil gögn liggja fyrir um þvingaðar líffæratökur úr samviskuföngum í Kína.

Jekielek er aðalritstjóri hjá The Epoch Times og stjórnandi viðtalsþáttanna American Thought Leaders. Í bókinni Killed to Order: China’s Organ Harvesting Industry and the True Nature of America’s Biggest Adversary tekur hann saman áratuga rannsóknir á kínverska líffæraígræðslukerfinu ásamt eigin rannsóknarvinnu og viðtölum.

Bókin kom út 17. mars á þessu ári og varð metsölubók á lista New York Times.

„Drepnir eftir pöntun“

Kjarni málsins er óhugnanlegur. Jekielek heldur því fram að í Kína hafi þróast kerfi þar sem samviskufangar séu í raun notaðir sem lifandi líffærabanki.

Þetta sé ekki hefðbundið mansal með líffæri þar sem líffæri látins einstaklings eru seld. Ásökunin er miklu alvarlegri: Fangar séu valdir vegna líffæra sinna og geti verið drepnir við sjálfa líffæratökuna þegar viðtakandi hefur fundist.

Jekielek lýsir þessu sem öfgafyllstu mynd líffærasmygls – stórfelldum drápum á samviskuföngum vegna líffæra þeirra.

Málið hefur verið rannsakað og rætt í tvo áratugi en Jekielek segir eitt helsta vandamálið hafa verið hversu erfitt fólk eigi með að trúa að slíkt kerfi geti yfirhöfuð verið til.

„Þegar ég heyrði fyrst um þetta vildi ég ekki trúa því,“ hefur hann sagt um fyrstu viðbrögð sín við ásökununum.

Falun Gong iðkendur sérstaklega nefndir

Falun Gong iðkendur eru fyrirferðarmiklir í þeim gögnum sem Jekielek fjallar um. Kínverski kommúnistaflokkurinn hóf umfangsmiklar ofsóknir gegn Falun Gong árið 1999 og mikill fjöldi iðkenda var fangelsaður.

Í rannsóknum á þvinguðum líffæratökum hafa einnig komið fram ásakanir um að Úígúrar og aðrir hópar sem sætt hafa ofsóknum kínverskra stjórnvalda hafi orðið fyrir barðinu á kerfinu.

Jekielek telur að rannsóknir á líffæratökunum segi jafnframt stærri sögu um eðli kínverska kommúnistaflokksins. Kerfi sem geti breytt einstaklingi í hráefni fyrir líffæraígræðsluiðnað sýni hvað geti gerst þegar ríkið öðlast nær ótakmarkað vald yfir einstaklingnum.

Erlendir sjúklingar hluti vandans

Málið nær jafnframt langt út fyrir landamæri Kína.

Kína hefur verið áfangastaður svokallaðrar ígræðsluferðamennsku þar sem erlendir sjúklingar ferðast þangað til að fá líffæraígræðslu. Þar vaknar grundvallarspurning: Hvaðan kemur líffærið?

Í löndum þar sem líffæragjafir byggjast á frjálsum gjöfum geta sjúklingar þurft að bíða lengi eftir hentugu líffæri. Þegar hægt er að lofa líffæri á óvenju skömmum tíma vakna spurningar um hvernig hægt sé að vita fyrirfram hvenær hentugur „gjafi“ verður tiltækur.

Það er ein af þeim spurningum sem hafa verið miðlægar í rannsóknum á kínverska ígræðslukerfinu.

„Ekki of seint“

Jekielek vill ekki aðeins upplýsa um það sem hann telur hafa gerst. Síðari hluti bókarinnar fjallar um alþjóðlegar afleiðingar líffæratökunnar og hvað vestræn ríki geti gert til að stöðva hana.

Lokakafli bókarinnar ber lýsandi heiti: It’s Not Too Late – „Það er ekki of seint“ – og sérstakur viðauki fjallar um hvað hægt sé að gera til að berjast gegn og stöðva þvingaðar líffæratökur í Kína.

Boðskapur Jekieleks er því ekki aðeins ásökun á hendur kínverskum stjórnvöldum. Hann beinir einnig spurningunni að Vesturlöndum, heilbrigðiskerfum þeirra, læknum og stjórnmálamönnum:

Ef fyrir liggja trúverðugar vísbendingar um að fólk sé drepið til þess að útvega öðrum líffæri – hversu lengi getur umheimurinn snúið blinda auganu gagnvart Kína?

Í meðfylgjandi viðtali ræðir Jan Jekielek rannsóknirnar að baki Killed to Order og hvers vegna hann telur málið varpa ljósi á sjálft eðli kínverska kommúnistakerfisins.

´