Disney býður kynbreytinga meðferðir á börnum starfsmanna

Rannsóknarblaðamenn „O’Keefe Media Group, OMG” geta sýnt fram á, að Walt Disney Company fjármagnar kynþroskalyf til kynbreytinga á börnum starfsmanna sinna.

OMG hefur komist yfir innri gögn hjá Disney sem sýna hvernig fyrirtækið býður starfsfólki sínu heilsugæsluáætlanir sem innihalda meðal annars „kynstaðfestandi og ótvíræða umönnun barna og unglinga.“

Það felur í sér ráðgjöf, lyfseðla, tilvísanir og kynþroskahamlandi lyf fyrir ólögráða börn sem halda að þau séu transfólk. James O’Keefe, stofnandi blaðamannahópsins útskýrir:

„Í gegnum heilbrigðisvernd Cigna fá starfsmenn Disney aðgang að þessum meðferðum, þar á meðal ráðgjöf, lyfseðlum, tilvísunum og kynþroskahemlum fyrir ólögráða börn sín. Ferlið hefst með tilvísunum frá heilbrigðisstarfsmönnum og er að fullu fjármagnað í læknisáætlun Disney með Cigna.”

„Walt Disney Company greiðir fyrir kynþroskahemla sem gera börn ófrjó og gjörbreytir líkama þeirra óafturkræft að eilífu.”

Uppáþrengjandi áróður

OMG hefur áður greint frá því hvernig Disney leggur mikla áherslu á að reyna að innræta kynjafræði í ung börn, LGBTQ-mál og annars konar áróðri sem tengist róttækum vinstrisinnuðum sýndarhugmyndum.

Auk þess að LGBT-skilaboð eru í mörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum Disney, felur þetta einnig í sér uppáþrengjandi markaðssetningu á LGBT-viðburðum sem sérstaklega er beint að börnum, fjármögnun á Pride skrúðgöngum um Bandaríkin og samstarf við LGBT-samtök fyrir börn, unglinga og fullorðna.

Einnig hefur komið í ljós, að Amit Gurnani, markaðsstjóri Disney, sem sjálfur er „dragdrottning“ telur mjög mikilvægt, að börn verði útsett fyrir efni um LGBTQ. Hins vegar er ekki verið að segja mikið frá því út á við. Sjá myndskeið að neðan:

Fara efst á síðu