Danmörk verður að hefja stórfellda endurflutninga ef Danir vilja ekki eiga á hættu að verða minnihlutahópur í eigin landi. Hið leiðandi danska dagblað, Berlingske BT, segir þetta í ritstjórnargrein með skýrri fyrirsögn: „Þau ættu ekki að fá inngildingu – þau ættu að fara heim.“
Að baki er spá um íbúafjölda sem birt var fyrr í júní og sýnir að innflytjendur og afkomendur þeirra geta orðið meira en helmingur íbúa Danmerkur fyrir árið 2096. Alla vega ef núverandi þróun heldur áfram. BT skrifar í ritstjórnargrein:
„Stjórnmálamenn ættu að taka þetta alvarlega. Aðgerða er þörf. Endurflutningur er nauðsynlegur.“
Blaðið bendir á að þeir sem hafa varað við því að Danir myndu einn daginn verða minnihlutahópur í eigin landi hafi áður verið hafðir að athlægi og stimplaðir sem samsæriskenningasmiðir:
„En það hlæja ekki margir núna. Breytingar á íbúafjölda eru raunveruleg hætta.“
BT kallar eftir stöðvun innflytjenda frá Mið-Austurlöndum og að fólk frá Mið-Austurlöndum án dansks ríkisfangs verði sent heim „með hraði.“
Alþjóðlegir samningar eru einnig gagnrýndir. BT telur að danskir stjórnmálamenn verði að velja: Annað hvort er meirihluti Dana tryggður til langs tíma – eða að alþjóðlegar skuldbindingar eru heilagar. Hvort tveggja er ekki mögulegt samtímis, samkvæmt blaðinu:
„Þeir verða að ákveða hvort það mikilvægasta sé að meirihluti þjóðarinnar séu Danir eftir tvær eða þrjár kynslóðir eða hvort alþjóðalög og sáttmálar séu það mikilvægasta.“