Fyrst nauðgaði hann stúlku, síðan stakk hann mann í hjartað og nýlega myrti hann sænskan smábarnafaðir á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn. Afríkanski innflytjandinn í Danmörku hefur sögu ofbeldisverka á baki sér. Samt segir saksóknarinn við Héraðsdóm Kaupmannahafnar að hann verði líklega ekki dæmdur í meira en átta til tíu mánaða fangelsi fyrir morðið á sænska lögreglumanninum Christian Zedig 32 ára, sem fór til Kaupmannahafnar til að horfa á leik Norðmann í heimsmeistarakeppninni á risaskjá með félögum sínum.
Samkvæmt sænska sjónvarpinu er talið að refsingin verði ekki lengur en 10 mánuði fyrir morðið en tekið er fram að þar sem endanlegar niðurstöður rannsóknar lögreglunnar sé ekki að fullu lokið, þá séu tölurnar bráðabirgðatölur.
Mörgum bregður í brún við svo lítilli refsingu fyrir manndráp í Danmörku eins og Malte Larsen þingmaður Dansk Folkeparti ber saman við helmingi harðari viðurlög fyrir að rífa síðu úr Kóraninum:
„Það getur einfaldlega ekki verið rétt að maðurinn sem myrti 32 ára gamlan sænskan fjölskylduföður á Íslandsbryggju eigi aðeins yfir höfði sér 8–10 mánaða fangelsi. Á sama tíma getur maður átt von á harðari viðurlögum ef maður rífur síðu úr Kóraninum eða brennir Kóran. Þetta er afleiðing þeirrar stefnu sem Mette Frederiksen og Lars Løkke Rasmussen hafa skapað. Við þurfum stjórnmálamenn sem taka ábyrgð og eru tilbúnir að breyta þessu.“
