Dan Hannan skrifar grein í Daily Mail og leggur út áhrifin á Brexit umræðuna í Bretlandi (millifyrirsagnir eru Þjóðólfs):
Hvers vegna kom þetta nokkrum á óvart? Ísland er auðugt og farsælt land. Það hafði ekkert að vinna með því að ganga í hnignandi Evrópusamband.
Land með stolta og forna þinghefð leggur sig ekki léttilega undir yfirþjóðlegt embættismannaveldi. Þjóðin sem býr ef til vill að best stýrðu fiskistofnum heims lætur ekki auðlindir sínar í hendur sambands sem hefur gengið nærri eigin fiskimiðum.
Íslendingar hafa með 52,8% atkvæða gegn 47,2% ákveðið að hefja ekki að nýju aðildarviðræður við ESB. Þeir sóttu fyrst um aðild árið 2009 í kjölfar bankahrunsins, sem kom hart niður á Íslandi.
En þeir lögðu umsóknina til hliðar árið 2015, þegar orðið var ljóst að Ísland hafði náð sér eftir fjármálakreppuna mun hraðar en ESB, að stórum hluta vegna þess að landið hafði haft vit á að bjarga ekki bönkunum.
Efaðist aldrei um niðurstöðuna
Ég efaðist aldrei um niðurstöðuna. Ég þekki Ísland vel og hef komið reglulega til þessa kalda, svarta túndrulands síðan ég var 19 ára. Ég tel leiðtoga NEI-hreyfingarinnar meðal góðra vina minna og lít á landið sem mitt annað heimili.
Ég hef margoft staðið á staðnum þar sem fyrsta þing þeirra var haldið, á Þingvöllum. Íslendingar komu þangað alls staðar að af eyjunni, riðu traustum litlu hestunum sínum yfir svört hraun og skærgrænan mosa og komu saman sem frjáls þjóð.
Þeir eru að sumu leyti ólíkir okkur. Fáir þeirra bera ættarnöfn, þeir leggja vegi sína þannig að þeir sneiði hjá álfahólum – sem sagðir eru heimkynni töfravera – og tungumál þeirra hefur varla breyst í þúsund ár. En þeir líkjast okkur í þrjóskunni.
Þeir þola illa að öðrum sé sagt fyrir verkum, sérstaklega af útlendingum.
Ég var í minnihluta þeirra sem spáðu NEI-sigri. Skoðanakannanir sýndu naumt en stöðugt forskot ESB-sinna og þegar talning hófst urðu ákafir Evrópusinnar, sem fengu byr undir báða vængi við fyrstu tölur úr Reykjavík, sífellt spenntari.
Margir telja Evrópusamrunann óhjákvæmilegan á sama hátt og marxistar töldu eitt sinn að sósíalisminn væri óhjákvæmilegur
Hvers vegna? Vegna þess að innst inni telja þeir Evrópusamrunann óhjákvæmilegan, á sama hátt og marxistar töldu eitt sinn að sósíalisminn væri óhjákvæmilegur. Þegar tilfinningin fyrir því að þróunin sé óumflýjanleg hverfur verða gallarnir augljósir á sársaukafullan hátt.
Lítill áhugi er á aðild að ESB annars staðar en meðal fátækari ríkja í suðausturhluta Evrópu, svo sem Svartfjallalands, Makedóníu og Moldóvu. Jafnvel Tyrkland hefur misst áhugann á aðild. Í Noregi benda kannanir til þess að andstaða við aðild sé komin í um 70%.
Í þessum löndum er aðild að ESB metin út frá hreinu kostnaðar- og ábatamati. Í Bretlandi, áratug eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 2016, er málið hins vegar enn hluti af menningarstríði. Hópur harðsnúinna andstæðinga Brexit, sem hvorki veit né lætur sig miklu varða hvað er að gerast innan ESB, er enn heltekinn af því að snúa niðurstöðu okkar eigin þjóðaratkvæðagreiðslu við.
Hvers vegna? Vegna þess að fyrir þeim snýst þetta síður um ESB en um að sigra ímyndaðan innlendan óvin, skrumskælda mynd af rasista.
Þeir hafa haldið fast í kröfuna um enduraðild í áratug, þrátt fyrir að ESB hafi tekið upp mun harðari innflytjendalöggjöf en Bretland, vegna þess að þeir eru fyrst og fremst andsnúnir ESB-efasemdarmönnum fremur en fylgjandi Brussel.
Það er rétt að Ísland á í nánara sambandi við ESB en við Bretar. Aðild að Evrópska efnahagssvæðinu þýðir að Ísland er hluti af innri markaðnum á öllum sviðum nema landbúnaði og sjávarútvegi. Mikilvægt er þó að Ísland stendur utan tollabandalagsins og hefur gert nokkra viðskiptasamninga sem ESB hefur ekki, þar á meðal við stór hagkerfi á borð við Kína og Indónesíu.
Það má færa rök fyrir því að Bretland færist nær innri markaðnum. En það þarf að gera af köldu raunsæi og ganga aðeins til samstarfs þar sem augljós gagnkvæmur ávinningur er fyrir hendi, fremur en að mæta til viðræðna með iðrun og yfirbót í huga. Því miður sýna viðbrögðin hér við hinni kærkomnu ákvörðun Íslendinga að við eigum langt í land með það.
Spurningin stendur engu að síður eftir.
Ef þjóð með álíka marga íbúa og Croydon er sátt við að treysta á sjálfa sig, við hvað erum við þá svona hrædd?

Lord Hannan of Kingsclere er óháður lávarður
og framkvæmdastjóri Institute of Economic Affairs.
