Íslendingar höfnuðu endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið þrátt fyrir að Brussel hefði litið á Ísland sem auðugt og tiltölulega auðvelt nýtt aðildarríki. Breska blaðið Daily Mail segir niðurstöðuna stórt áfall fyrir útþensluáform ESB og bendir á að innganga Íslands hefði jafnframt styrkt stöðu sambandsins á norðurslóðum og hugsanlega ýtt undir ESB-umræðu í Noregi.
Í ítarlegri umfjöllun Daily Mail um íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna segir að sigur NEI-hliðarinnar, 52,8% gegn 47,2%, hafi komið illa við áform Brussel um frekari stækkun sambandsins. Blaðið segir að íslensk stjórnvöld hafi sett kosninguna fram sem eins konar „nú eða aldrei“ augnablik þar sem nánari tengsl við ESB gætu varið Ísland gegn viðskiptastríðum og vaxandi samkeppni stórvelda á norðurslóðum. En íslenskir kjósendur völdu aðra leið.
Brussel vildi fá „auðugt aðildarríki“
Sérstaka athygli vekur lýsing Daily Mail á því hvernig litið hafi verið á Ísland innan ESB. Samkvæmt blaðinu var Brussel ákaft að fá nýtt „auðugt aðildarríki“ inn í sambandið. Ísland hafi verið talið áhættulítið aðildarríki sem gæti orðið jákvætt fordæmi á sama tíma og efasemdir væru uppi um frekari stækkun ESB.
Þá hafi verið gefið til kynna að vilji væri til málamiðlana um erfiðustu álitamálin til að auðvelda inngöngu Íslands, þar á meðal sjávarútveg. Marta Kos, stækkunarstjóri ESB, sagði sérstöðu Íslands í sjávarútvegi og landbúnaði vel þekkta og að taka yrði vandlega tillit til hennar.
Hún lýsti jafnframt þeirri trú sinni að ásamt aðildarríkjunum væri hægt að finna „skapandi lausnir“.
Sjávarútvegurinn eindregið á móti
Daily Mail segir fullveldi Íslands og yfirráð yfir fiskimiðunum hafa verið meðal helstu ágreiningsefna kosningabaráttunnar. Blaðið segir andstöðu íslensks sjávarútvegs við endurupptöku viðræðna hafa verið mjög mikla og að talið hafi verið að um 90% fyrirtækja í greininni væru andvíg inngöngu í sambandið. Þetta hafi vegið þungt enda vildu Íslendingar áfram hafa full yfirráð yfir fiskveiðiauðlindinni.
JÁ-hliðin hafi hins vegar meðal annars haldið því fram að innganga gæti stuðlað að lægri vöxtum og auknu öryggi, á meðan NEI-kjósendur lögðu áherslu á sjálfstæði og fullveldi landsins.
ESB sá tækifæri á norðurslóðum
En hagsmunir Brussel snerust samkvæmt Daily Mail ekki eingöngu um Ísland sjálft. Innganga Íslands hefði aukið viðveru og áhrif Evrópusambandsins á norðurslóðum, sem hafa fengið sífellt meira vægi í öryggis- og varnarmálum. Stríðið í Úkraínu og yfirlýsingar Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi einnig verið hluti umræðunnar á Íslandi.
Blaðið rifjar jafnframt upp varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 og segir ófyrirsjáanleika Trumps hafa verið notaðan í umræðunni um öryggismál landsins. Þrátt fyrir þetta varð öryggisröksemdin ekki nægileg til að tryggja sigur JÁ-hliðarinnar.
Ísland átti að verða dæmi um vel heppnaða stækkun
Eitt athyglisverðasta atriðið í umfjöllun Daily Mail er að Brussel hafi vonast til að geta sýnt Ísland sem dæmi um jákvæða stækkun Evrópusambandsins. Auðugt, stöðugt og þróað lýðræðisríki á borð við Ísland hefði getað gert frekari stækkun pólitískt auðveldari innan sambandsins.
Blaðið nefnir sérstaklega Svartfjallaland. Árangursrík innganga Íslands hefði getað auðveldað ESB að afla stuðnings aðildarríkjanna við inngöngu fátækari umsóknarríkja. Það fellur vel saman við útskýringar Ólafs Ragnars Grímssonar um að Ísland yrði notað til að greiða fyrir aðild Svartfjallalands að sambandinu, sem utanríkisráðherra svarað sem alþjóð veit: Absolutely!
En þau áform ESB urðu að engu með niðurstöðu Íslendinga.
Augun beindust einnig að Noregi
Þá kemur Noregur aftur við sögu. Daily Mail segir inngöngu Íslands hugsanlega hafa getað „snúið einhverjum höfðum“ í hinu ríka landi Noregi, sem stendur utan Evrópusambandsins líkt og Ísland.
Þetta er sama atriði og komið hefur fram í annarri erlendri umfjöllun eftir kosningarnar: Ísland var ekki aðeins mikilvægt sem hugsanlegt nýtt aðildarríki heldur vegna þeirra áhrifa sem íslenskt JÁ hefði getað haft á ESB-umræðuna annars staðar á Norðurlöndum.
Íslenska NEI-ið stöðvaði það ferli.
EES og Schengen halda áfram óbreytt
Daily Mail minnir jafnframt á að niðurstaðan þýði ekki að Ísland snúi baki við Evrópusamstarfi. Landið er áfram aðili að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen-samstarfinu og þjóðaratkvæðagreiðslan breytir engu þar um.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafði fyrir kosningarnar sagt að sigur NEI-hliðarinnar myndi taka vangaveltur um ESB-aðild af dagskrá. Þótt þjóðaratkvæðagreiðslan hafi ekki verið lagalega bindandi hafði ríkisstjórnin heitið því að virða niðurstöðuna.
Niðurstaðan er því skýr: Ísland verður áfram utan Evrópusambandsins og áform Brussel um að bæta auðugu norrænu ríki í hóp aðildarríkjanna hafa að minnsta kosti um sinn verið slegin út af borðinu.
