Svartsýni sósíalismans þekkir engin takmörk. Áróðurinn gegn Bandaríkjaforseta kemur frá kommúnistum og sósíalistum sem ekki hafa getað sigrað Donald Trump, hvorki með rökum né svindli. Og ekki heldur hefur tekist að ráða hann af dögum, þótt hann gangi núna um með rispu á hægra eyranu. Núna koma hverjar sannanir á fætur annarri um kosningasvindl demókrata sem ríghalda sér í það að fólk fái að kjósa í kjörklefanum án þess að sýna persónuskilríki og hægt að merkja við í kjörskrá. Demókratastýrð fylki neita að afhenda kjörskrár til yfirkjörstjórnar Bandaríkjanna svo hægt sé að sjá galla kerfisins til að lagfæra það. Hundruð þúsunda látinna manna og kvenna eru því enn á kjörskrá slíkra fylkja og líkin mæta til að kjósa. Svona ólýðræðisleg vinnubrögð styðja þau Dagur B. Eggertsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð sem fallast í faðma í botnlausum áróðri á íslenskum flekaskilum gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna sem staðfestir að allir menn eru jafnir og að málfrelsi og frelsi einstaklingsins eru ein þýðingarmestu verðmæti jarðarbúa.
Það hefur verið merkilegt að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið notaður af fólki eins og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Þordísi Kolbrúnu fyrir eigin persónulega hagsmuni. Þorgerður kúlulánadrottning varð tilneydd að hverfa frá stöðunni, eftir bankahrun og stofnaði Viðreisn með þeim sorglegu afleiðingum sem við erum vitni að í dag. Hún hefur margbrotið stjórnarskrána og stjórnskipunarlög landsins og fylgir í engu forsetaúrskurði um starfssvið ráðuneyta. Með atkvæðagreiðslunni um inngöngu Íslands í Evrópusambandið hefur hún gerst sek um valdníðslu með því að hrifsa til sín valdsvið stjórnarráðsins. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra er á bólakafi á námskeiði sósíalískra stjórnenda hjá WEF að fyrirmynd Katrínar Jakobsdóttur, sem selt hefur sálu sína til glóbalizta sem hyggjast ná stjórn á alheiminum með því að tengja saman „loftslagvá við heilbrigðismál.” Þannig á að flytja alræðisvald WHO í heilbrigðismálum yfir á SÞ sem ætlar að taka sér sósíalískt alræðisvald yfir allri plánetunni. Kínverski kommúnistaflokkurinn glottir þar að tjaldabaki.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð fv. utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins hefur núna lagst í sósíalíska hugmyndafræðilega vegferð með spilltasta stjórnmálamanni í seinni tíð, sósíalistanum Degi B. Eggertssyni, og heldur úti taumlausum áróðri gegn Donald Trump forseta Bandaríkjanna og Bandaríkjamönnum sem hafa verið og eru besti vinur Íslendinga fram að þessu. Eru þau komin í heimatilbúinn áróður ESB gegn Bandaríkjunum og reyna að kljúfa íslensku þjóðina frá hefðbundnu samstarfi við Bandaríkin.
Af hverju ræðir þetta fólk aldrei um frið í Úkraínu öðru vísi en handan við þriðju heimsstyrjöldina, þar sem þau sjá fyrir sér að Rússland verði rjúkandi rústir í kjarnorkustyrjöld og gleyma því vísvitandi að öll Evrópa fer sömu leið?
Öll rökin gegn Donald Trump byggir á öfundsýki gagnvart manni sem glímir við stærstu spillingu sem mannkyn hefur upplifað frá tímum bolsévisma Sovétríkjanna. Kommúnistar hafa hreiðrað um sig í spilltum alþjóðastofnunum eins og SÞ, WHO, WEF og ESB. Allan liðlangan daginn hljómar áróðurinn eins og hjá einræðisstýrðum Þjóðverjum fyrir seinni heimsstyrjöldina: Þið verðið að fylgja lögunum, Þið verðið at treysta þessum stofnunum osvfrv. Áróðurinn um Grænland er hjúunum Degi B. og Þórdísi Kolbrúnu ekki til framdráttar frekar en aðrar lygar og ofstæki gegn lýðræðislega kjörnum forseta Bandaríkjanna. Trump tók upp Grænland sem svar við svikum ESB við að koma að friðarumleitunum við Rússland. ESB sveik Bandaríkjamenn sem reyndu að koma á friði í Úkraínu og sendi vopnaðar sveitir til Grænlands til að skjóta á Bandaríkjamenn sem ESB sagði að myndu ráðast á Grænland! Mörg stærstu ríki Nató neituðu einnig að aðstoða Bandaríkjamenn, þegar þeir lögðu til atlögu við Íransstjórn sem var fimm mínútum í tólf að búa til kjarnorkusprengjur.
Af hverju ræðir þetta fólk ekki um nauðsyn þess að ræða við Pútín til að binda endi á Úkraínustríðið? Af hverju ræðir þetta fólk ekki um slátrun írönsku klerkastjórnarinnar á yfir 50 þúsund saklausum, vopnlausum landsmönnum sem mótmæltu harðstjórn klerkaveldisins í janúar s.l.?
Þessi móðursýki sósíalista ESB grundvallast á því, að Trump er helsti þrándur í götu hins alþjóðlega sósíalisma sem ætlar sér í samstarfi við múslímska bræðralagið og fasistana í Davos að ná yfirtökum á öllum heiminum. Innflytjendastefnan kemur frá Sameinuðu þjóðunum sem á að skapa jafnrétti í heiminum og samtímis hleypa íslamistum ótakmarkað inn í Evrópu; heimsfaraldrinum var og verður stjórnað af WHO og WEF í samstarfi við stærstu lyfjaframleiðendur heims; græna blekkingin um koltvísýring sem er undirstaða ljóstillífunar á jörðinni er í höndum SÞ, kynjafárið/transhugmyndafræðin er í höndum SÞ og WHO; Úkraínustríðinu er stjórnað af ESB og vopnaframleiðendum heims: stafrænt vegabréf að hætti kínversku ógnarstjórnarinnar er í höndum ESB, SÞ og WEF, sama gildir um ritskoðun og þannig má telja áfram.
Ísland á að fleyja þessum sósíalíska áróðri beint í ruslatunnuna, þar sem hann á heima.
Er ekki komið nóg af slátri marxista og sósíalista á jarðarbúum hingað til? Af hverju kynda þau Dagur B. og Þórdís Kolbrún undir áframhaldandi stríði í Úkraínu og að komið verði í veg fyrir friðarumleitanir Bandaríkjamanna?
